Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Málþing um Tunguveg 13. október

2. október 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Mánudagskvöldið 13. október kl. 20. 30 verður málþing í Listasal
Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.

Lagning Tunguvegar úr hinu nýja Leirvogshverfi í miðbæ Mosfellsbæjar verður
til umræðu á þessum fyrsta opna fundi Varmársamtakanna í vetur.

Dr.
Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur og Valdimar Kristinsson, blaða- og hestamaður
munu vera með framsögu á fundinum og fjalla um áhrif vegarins á umhverfi sitt.
Tunguvegur liggur yfir svæði á náttúruminjaskrá og í grennd við friðlýsta ósa
Varmár, einnig yfir Köldukvísl ásamt því að hafa mikil áhrif á aðstöðu
hestamanna í Mosfellsbæ.Hér má
sjá skipulagsgögn vegna Tunguvegar.




Hér eru greinar um Tunguveg á bloggi Varmársamtakanna:

Umhverfismatáætlana eða umhverfismat framkvæmda. -Eða hvoru
tveggja?

Þörf á aðgæslu við Varmá





—



Varmársamtökin


íbúa- og umhverfissamtök í Mosfellsbæ


varmarsamtokin@gmail.com


http://varmarsamtokin.blog.is