Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Æfingaferð til Hestheima 7-9 mars

28. febrúar 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Þá er komið að æfingaferð keppnisnámskeiðs til Hestheima, helgina 7-9 mars.

Reiknað er með að allir krakkar séu komnir í Hestheima á föstudagskvöld. Foreldrar þurfa sjálfir að sjá um þann þátt en við munum að sjálfssögðu reyna að bjarga ef einhver er í vandræðum með að komast. Eins er með heimferðina á sunnudeginum.

Hestaflutningabíll kemur í Hindisvík kl 20.00 á föstudagskvöld og tekur þá hesta sem óskað er eftir flutning á. Hann verður svo í Hestheimum kl 16.00 á sunnudag til að taka hestana til baka. Krakkarnir hafa með sér blöð heim eftir tímana á fimmtudags og föstudagskvöld sem foreldrar eru beðnir að fylla út og afhenda í Hestheimum á föstudagskvöldið. Þeir sem af einhverjum ástæðum fá ekki svona blað eru beðnir um að senda póst til breidafit@isholf.is og við munum hafa samband. Kostnaður vegna flutnings á hestum sem er 4000 kr á hest, báðar leiðir og verður innheimtur af gjaldkera þegar í ljós kemur hverjir vilja nota sér þessa þjónustu. Eins þurfum við að innheimta 1000 kr á barn vegna kostnaðar af fylgdarfólki sem gert er ráð fyrir að greiði hálft gjald. Fulltrúar æskulýðsnefndar í þessari ferð eru Haukur og Ragnheiður auk þess sem við reynum að fá tvo foreldra til aðaðstoða okkur að þessu sinni. Að sjálfsögðu eru allir foreldrar sem áhuga hafa velkomnir.