Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Þrekþjálfun afreksfólks

19. febrúar 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Mosfellsbær og íþróttafélögin í Mosfellsbæ hafa gert samning við líkamsræktarstöðina Eldingu, sem er í íþróttahúsinu við Varmárskóla.  Samningurinn felur í sér að Mosfellsbær greiðir Eldingu fyrir ákveðin fjölda tíma  til handa afreksfólki íþróttafélagana sem íþróttafélögin síðan ráðstafa til sinna afreksmanna.  Lögð verður áhersla á þrekþjálfun og Olympiskar lyfitngar undir stjórn þeirra Hjalta Ursusar kraftakarls og Höllu Heimisdóttir líðheilsufræðings.  Þeir sem koma til greina verða að keppa fyrir Hörð og vera í unglinga, ungmenna eða fullorðinsflokki.  Farið verður eftir stigagjafarreglum félagsins, þeim sömu og eru notaðar til að velja íþróttamann Harðar og árangri í öðrum hestaíþróttakeppnum, þolreið, fimi o.s.frv..  Áhugasamir sendi tölvupóst á gudjon@arkform.is  með upplýsingum um aldur og stigafjölda árið 2007 og/ eða annan árangur í hestaíþróttum.  Til að byrja með getum við ráðstafað 10 kortum.