Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning á Íslandsmót yngri flokka!

12. júní 2007 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Harðarfélagar  –
Skráning á Íslandsmót yngri flokka

 

Miðvikudagskvöldið 13. Júní verður skráning á Íslandsmót
yngri flokka fyrir Harðarfélaga í félagsheimilinu Harðarbóli, Varmárbökkum, kl.
20-21. Íslandsmótið fer fram hjá Hestamannafélaginu Gusti, Kópavogi dagana
21.-24. Júní næstkomandi.  Einnig verður
hægt að skrá í gegnum síma í nr: 5668282.


Skráningargjald er 3.000 kr á skráningu og minnum við knapa á að vera með is
númer hrossanna.


Heimilt er að skrá fleiri en
einn hest í hverja grein, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal
hann/hún velja einn hest til úrslitakeppni.

Vonandi
sjáum við sem flesta unga Harðarmenn mæta og skrá sig!

 

Kv,
Mótanefnd