Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Ársskýrsla 2005

16. mars 2007 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Starfsskýrsla stjórnar hestamannafélagsinns Harðar árið 2005





Stjórnin var
skipuð eftirtöldum aðilum:














Marteinn Hjaltested, formaður,






Guðjón Magnússon, ritari


Guðmundur Björgvinsson,
varaformaður


Gunnar Engilbertsson, gjaldkeri


Halldór Guðjónsson,
meðstjórnandi


Kolbrún Haraldsdóttir, meðstjórnandi


Páll Viktorsson,
meðstjórnandi





Varamenn:


Konráð Adolphsson


Oddrún Ýr
Sigurðardóttir


Sigurður Teitsson











Helstu störf stjórnar á
árinu





Þó ekki hafi verið landsmót eða landsþing á árinu var árið samt
annasamt, haldin voru reiðnámskeið fyrir bæði börn og fullorðna, mótastarfið var
í mikklum blóma og fræðslufundir voru haldnir á laugardagsmorgnum sem er nýjung
sem mælist vel fyrir. Fastir liðir eins og reið í Fák og Gust voru á sýnum stað
auk þess sem við tókum vel á móti félögum okkar þegar þeir komu í
heimsókn.





Gott samstarf hefur verið við bæjarstjórn Mosfellsbæjar og
gildir þá einu hvort um stjórnar- eða stjórnarandstöðu var að ræða, en við
teljum okkur vera að merkja að aukinn skilningur er á íþróttinni á meðal
bæjarfulltrúa, enda höfum við verið ötul við að kynna þær breytingar sem
hestaíþróttin er að ganga í gegnum með aukinni þáttöku barna, unglinga og
ungmenna. Við höfum einnig vakið athygli á að hestamennskan er mesta
fjölskyldusport Íslendinga, en hestamannafélagið Hörður er næst stærsta
hestamannafélag landsinns.





Fjölmörg metnaðarfull mót voru haldin á árinu
undir stjórn mótanefndar, bæði innanfélagsmót og opin mót. Félagið styrkti
félagsmanninn Sigurð Straum Pálsson til utanferðar á heimsmeistaramót þegar
ljóst var að hann komst inn í landsliðið. Siggi gerði það gott og á nú
Íslandsmetið í skeiði og hélt á heimsmetinu í nokkrar mínútur eða þar til annar
knapi gerði aðeins betur, frábært hjá okkar manni!


Kvennadeildin hélt hið
árlega Langbrókarmót sem tókst með afbrigðum vel, en þáttakan eykst með hverju
árinu sem líður. Sá frjálslegi andi sem þar ríkir virðist vera gótt mótvægi við
alvarleika hins hefðbundna mótahalds.





Nú líður senn að því að göturnar í
neðra hverfinu verði lagfærðar, en það mál er nú loksins í höfn eftir margra ára
þrísting. Bærinn stefnir að því að vinnu við göturnar verði lokið áður en
fjöldinn tekur inn í lok desember.





Framkvæmdir á Blikastaðanesi eiga
eftir að setja svip á reiðleiðina um Blikastaði til Reykjavíkur næstu árin. Þar
mun verða, og er nú þegar hafinn, námugröftur með tilheyrandi vélum og
sprengingum. Við höfum, í samstarfi við bæjarstjórnina, reynt að milda þessar
aðgerðir eins og hægt er gagnvart okkur hestamönnum, en við munum kynna þær
öryggis og umgengnisreglur sem gilda um ríðandi umferð um nesið í næsta
fréttabréfi. Þar er um að ræða takmarkanir á vinnutíma í námunum,
viðvörunarskilti, mönnuð viðvörun fyrir sprengingar ofl.





Barna og
unglingastarfið var fjölbreytt á síðasta ári og fjöldi barna lauk reiðnámskeiðum
hjá Sigrúnu eftir knapamerkjakerfinu, auk þess að Oddrún og Friðdóra stýrðu
keppnisnámskeiðum.





Reiðvegamálin þokuðust áfram, en kynnt var
áherslubreyting stjórnar og reiðveganefndar fyrir bæjarstjórninni. Fram að þessu
hefur verið lögð áhersla á að ná sem lengstum leiðum fyrir þann pening sem til
ráðstöfunar er á hverju ári, en nú langar okkur til að fara smám saman að bæta
yfirborð reiðveganna í líkingu við það sem er í Hafnarfirði.






Reiðhallarmálin eru með stærstu sigrum ársinns, en nú er búið að
samþykkja deiliskipulag fyrir stóra reiðhöll á svæðinu, við eigum því
byggingareit fyrir reiðhöll, og það sem meira er, vilyrði fyrir fjármögnun
virðist ætla að liggja fyrir.





Félagsbjaldið er óbreytt frá því sem verið
hefur undanfarin ár, 7.500.- krónur á ári (eða 625.- krónur á mánuði) fyrir
fullorðna og 3000.- krónur fyrir unglinga, frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Auk
þess er boðið upp á hjónagjald sem er 10.000.- krónur fyrir hjónin og
fjölskyldugjald sem er 15.000.- krónur fyrir fjölskyldu og öll börn undir 16 ára
aldri.


Þrátt fyrir að árgjaldið sé hóflegt á miðað við árgjöld í öðrum
íþróttagreinum er innheimta félagsgjalda vandamál hjá félaginu, en aðeins
innheimtist liðlega helmingur þeirra árlega. Erfitt er að taka á þessu máli þar
sem ekki má þvinga neinn til að vera í félagi, en spurning er hvort ekki sé hægt
að höfða betur til samkenndarinnar í þessu máli.





Íþróttavellirnir
þarfnast viðhalds, en bæjarstjórnin veitti okkur 1,5 millj. kr skyndistyrk til
lágmarks lagfæringa á árinu, en við biðluðum til þeirra um hjálp þegar sýnt
þótti að vellirnir yrðu ekki nothæfir að vori.





Enn hefur ekkert áunnist í
hitaveitumálum, en það mun verða eitt af baráttumálum næsta árs.





Þolreið
í Laxnes var endurvakin af Póra í Laxnesi, en hann hefur metnaðarfullar
væntingar til keppninnar á næstu árum og vill að Hörður komi að skipulagningu og
framkvæmd keppninnar í framtíðinni. Ungmenni á vegum Harðar aðstoðuðu við
keppnina í ár, en vonast er til að hún geti orðið liður í fjáröflun þeirra þegar
fram líður.




















Skýrsla fræðslunefndar





Í
fræðslunefnd árið 2005 störfuðu Þorvarður Friðbjörnsson, Oddrún Ýr
Sigurðardóttir, Guðjón Magnússon og Margrét Dögg Halldórsdóttir.


Starfið var
með nokkuð breyttu sniði frá fyrri árum. Haldnir voru fræðslufundir á
laugardagsmorgnum nokkuð reglulega og voru flestir vel sóttir. Helst fór aðsókn
að dvína er leið á vorið. Boðið var upp á morgunverð með fyrirlestrunum gegn
vægu gjaldi og mæltist vel fyrir.


Reiðnámskeið voru þrjú:


Reiðnámskeið
fyrir fullorðna hjá Sölva Sigurðarsyni Reiðnámskeið hjá Friðdóru Friðriksdóttur
undir nafninu “Betri árangur með bættri reiðmennsku” og reiðnámskeið fyrir konur
hjá Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur. Þátttaka á öll námskeiðin var mjög góð en verð
þeirra var 10.000,- fyrir skuldlausa félagsmenn og 18.000 fyrir
aðra








Starfsskýrsla Beitar- og umhverfisnefndar





Beitar- og
umhverfisnefnd var skipuð eftirtöldum aðilum:





Valdimar Kristinsson



Þorvaldur Kristjánsson


Guðmundur Magnússon


Þórhildur
Þórhallsdóttir











Starfsemi Beitar- og umhverfisnefndar var með
svipuðu sniði á árinu og verið hefur frá því nefndinni var komið á laggirnar.
Umsjón með útleigu beitarhólfa í landi Mosfellsbæjar, uppgræðsla í Sogum og
úttekt á beitarhólfum á haustdögum. Þá var haldinn umhverfisdagur á
uppstigningardegi eins venja er komin á.





Útleiga beitarhólfa


Útleiga
beitarhólfa var með nokkuð svipuðu sniði og árið á undan. Ekki hefur gengið nógu
vel að fá þau nýju hólf inn í kerfið sem til stóð að félagið átti að fá en
líklegt er þó að þar verði breyting á á næsta ári.


Mikilvægt er að
nefndarmenn og félagsmenn almennt líti vel í kringum sig í því augnamiði að sjá
góðar “matarholur” og góðum stöðum sem hugsanlega mætti nýta til
beitar.





Úttekt beitarhólfa


Þann 8, september sl. Mætti Björn Barkarson
frá Landgræðslunni og skoðaði beitarhólfin ásamt dýragæslumanni Mosfellsbæjar
Hauki Níelssyni og formanni Beitar- og umhverfismanni. Útkoman var nokkuð góð
eða vel viðunandi. Eins og ávallt fyrr var viðskilnaður yfirleitt mjög góður. Í
nokkrum tilfellum er þó um að ræða svæðisbundna ofbeit sem eins og áður má rekja
til rangrar beitarstýringar og er greinilegt að þörf er á frekari uppfræðslu því
greinilega vantar herslumuninn á að allir hafi tilfinningu fyrir því hvað er
hófleg nýting og hvernig eigi að stjórna beit. Þótt ekki sé um alvarleg tilfelli
að ræða er ljóst að bragarbótar er þörf. Sér í lagi þarf að skapa betri skilning
á í hvaða ástandi þarf að skila hólfunum að lokinni beit og hvernig beri að ná
því markmiði. Ánægjulegt er hversu margir eru farnir að tileinka sér rand-
og/eða hólfabeit sem eykur mjög afköst og nýtingu á einstökum hólfum auk þess
sem slíkar aðferðir tempra mjög óæskilega holdsöfnun hrossanna yfir há
sumarið.





Uppgræðsla


Áframhald hefur verið á flutningi hænsna- og
hrossaskíts á uppgræðsluland í Sogum gegnt Stardal í sumar og haust. Búið er nú
að loka svæðinu þar sem í ljós kom sem vænta mátti að einhverjir væru farnir að
flytja þangað ýmiskonar rusl og drasl sem á þar engan veginn heima. Má þart
nefna heyrúllur og bagga sem skilið var eftir í plastinu sem nú er búið að
fjarlægja. Er í ráði að þrífa svæðið enn betur og verður því væntanlega lokið
þegar aðalfundur félagsins verður haldinn. Næst á dagskrá þar á eftir er svo að
dreifa þeim skít sem fluttur hefur verið á svæðið. Að því loknu blasir við að
hefja þarf vegagerð ef nota á þetta svæði til losunar á hrossataði til
framtíðar. Benda má á að nú kostar 8000 krónur að losa fullan vörubíl í
Álfsnesi.Hugmyndir eru á lofti um að greitt verði fyrir aðgang að losunarsvæðinu
á Langahrygg sem melurinn kallast. Verði þeim fjármunum svo varið til vegagerðar
og dreifingar á taðinu. Áður en hafist verður handa um vegagerð og raunar
framhald á uppgræðslu þarf að liggja fyrir samningur milli Mosfellsbæjar um
afnot Harðar að svæðinu





f.h. Beitar- og umhverfisnefndar


Valdimar
Kristinsson











Skýrsla Æskulýðsnefndar





Beitar- og
umhverfisnefnd var skipuð eftirtöldum aðilum:


Guðrún Ólöf Jónsdóttir,
Maríanna Eiríksson, Elín Bergsdóttir, Anna B Jónsdóttir, Valgerður J
Þorbjörnsdóttir, Vera Roth, Helga H Þorleifsdóttir og Kolbrún
Haraldsdóttir


Foreldrafundur. Þann 19. janúar hófst starfið sl. vetur með
fundi þar sem börnum og foreldrum þeirra var kynnt vetrarstarfið. Skráning hófst
á reiðnámskeið fyrir fyrri hluta vetrarins og heiðruðum við 3 einstaklinga í 3
flokkum, barna, unglinga og ungmenni fyrir góðan árangur á sl ári.


Námskeiðin
hófust í byrjun febrúar, Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari kenndi líkt og
undanfarin ár, og voru 4 hópar á þriðjudögum og 4 hópar á fimmtudögum alls 46
börn og unglingar. Einnig var boðið upp á sérstakt keppnisnámskeið sem
reiðkennararnir Friðdóra Friðriksdóttir og Oddrún Ýr Sigurðardóttir sáu um. Á
því námskeiði voru 20 börn og unglingar í 5 hópum.


Námskeiðin voru
niðurgreidd af styrktarfé sem Mosfellsbær lætur æskulýðsstarfinu í té. Auk þess
greiðir Mosfellsbær leigu á húsnæði fyrir kennsluna í Hestamiðstöðinni
Hindisvík.


Eftir páska hófust síðan seinni námskeiðin og skáðu sig 40 börn
hjá Sigrúnu Sigurðardóttur, þau yngstu á 6. aldursári.


Knapamerkjanámskeið
var haldið á sama tíma og voru 20 börn og unglingar sem skráðu sig. Af þeim 20
voru 18 sem luku 1. stigi ( Græna knapamerkið) , 5 luku við 2, stigið (
appelsínugula knapamerkið) Af þeim voru 3 sem tóku bæði stigin. Þannig að nóg
var að gera hjá Harðarbörnunum í vor.


Glöð og ánægð börn við afhendingu
viðurkenningarskjala sinna í Knapamerkjakerfinu.


Fræðslufundur.
Æskulýðsnefndin sá um fræðslufund, var Sölvi Sigurðarson fenginn til að fræða
börnin og unglingana um fóðrun og heilbrigði hesta. Mæting var mjög góð og voru
börnin mjög áhugasöm, líflegar umræður voru eftir fræðsluna og mikið rýnt í
einkenni sjúkdóma.


Unglingaárshátíð 27 febrúar haldin í Fáksheimilinu. Þeir
Harðar unglingar sem fóru skemmtu sér vel, en mæting hefði mátt vera betri.



Barnaárshátiðin, ( 9-12 ára) 4 mars. Hin sameiginlega barnaárshátið
Hestamannafélaganna á höfðuborgarsvæðinu var haldin í Félgasheimilinu okkar,
Harðarbóli samkvæmt venju sl ára. Var góð mæting og óskuðum við eftir að
forráðamenn hinna félaganna mættu með sínum félagsmönnum og var það mjög gott
þar sem tæplega 90 börn komu. Boðið var upp á skemmtiatriði og töfraði Lalli
töframaður börnin upp úr skónum. Vakti hann mikla athygli fyrir vel útfærða
töfra og reyndu sum börnin að sjá í gegnum brögðin. Síðan var matur og farið í
leiki og dansað á eftir.


Æskan og Hesturinn 12. og 13. mars. Mikil
eftirvænting er ávalt fyrir þátttöku í sýningunni Æskan og Hesturinn, þar sem
börnin fá gleði og útrás í búningagerð. Sigrún Sigurðardóttir og Oddrún Ýr völdu
þátttakendur og hesta. Oddrún sá um að æfa atriði Harðarmanna sem var nú spænskt
þema”Senjorar og Senjoritur”. Kolbrún Haraldsdóttir sá um búningahönnun með
aðstoð Úlfhildar Geirsdóttur sem saumað hefur búninga fyrir félagið til margra
ára. Tókst sýningin vel og var okkur til sóma. Einnig skiptu 6 stúlkur með sér
að vera í fánareiðinni sinn hvorn daginn.




















Oddrún
leggur línurnar fyrir sýninguna


Harðarstúlkurnar, Rut og Aðalheiður
Guðjónsdætur ásamt Ragnheiði


og Söndru Sigurðardóttur tilbúnar í fánareiðina






Hestheimaferðin. Helgina 23 – 25 apríl var farið með 11 börn og hesta
til Ástu Beggu og Gísla í Hestheimum Ásahreppi. Ferðin var ævintýraleg í alla
staði fyrir börnin og unglingana, að eyða heilli helgi við frábærar aðstæður með
hestinum sínum. Reynsla okkar af þessum ferðum hingað til hefur verið frábær.
Ásta Begga ofdekraði okkur í mat, litla gistihúsið var yndislegt, þar var gott
pláss og heitur pottur og aðstæður fyrir hestana okkar var glæsileg, í stóru og
björtu hesthúsi. Þar er innangengt í reiðhöllina þar sem börnin höfðu aðstöðu
til náms og leikja. Fengum við reiðkennara úr næsta nágrenni, Hugrúnu
Jóhannsdóttur í Austurkoti til að leiðbeina þeim. Var einnig farið í útreiðatúr
um sveitina.





Katrín Sveinsdóttir Vera Roth og Hildur Kristín
Hallgrímsdóttir





Einn hópur tilbúinn í reiðkennslu Hugrún reiðkennari fer
yfir áhesluatriðin eftir reiðkennsluna




















Leo Hauksson
og Daníel H Michaelsson Kátir Harðar krakkar í Hestheimum





Youth Camp
2005. Sigurgeir Jóhannsson,13 ára félagi


í Herði, sótti um að komast á
unglingamót FEIF


Youth Camp í sumar og var það samþykkt að hann


yrði
einn af íslensku unglingunum fyrir hönd LH.














Þolreiðin að
Laxnesi. Nokkur börn og unglingar í Herði voru fengin til að aðstoða knapa er
tóku þátt í Þolreið frá Fáksheimilinu í Víðidal að Laxnesi í Mosfellsdal.
Hjálpuðu þau við skráningu í byrjun, tímatöku og aðstoðuðu knapa að Laxnesi.
Einnig fylgdust börnin með skoðun dýralæknanna Þórunnar Þórarinsdóttur og Helga
Sigurðssonar á hestunum af miklum áhuga. Tvö Harðarbörn tóku þátt í Þolreiðinni
og voru þau einu börnin í þeim flokki. Mikill áhugi er hjá framkvæmdaaðilum
þolreiðarinnar, að hún verði árlegur viðburður þar sem æskulýðsstarf Harðar
myndi koma að og aðstoða og njóta góðs af.











Fyrir hönd
Æskulýðsnefndar


Guðrún Ólöf Jónsdóttir og Kolbrún
Haraldsdóttir








Skýrsla reiðveganefndar Harðar
2005





Reiðveganefnd var skipuð eftirtöldum aðilum:





Guðjón
Magnússon


Guðmundur Jónsson


Helgi Ólafsson


Hreinn Ólafsson


Jóhannes
Oddsson


Ragnheiður Þórólfsdóttir





Nokkrir fundir voru á vormánuðum um
framtíðarsýn í reiðvegamálum og skipulag reiðstíga út úr bæjarfélaginu. Nefndin
fylgdist með þróun mála í Álafosskvos og var kölluð á fundi um staðsetningu
reiðvegar í Reykjakverfi. Þó lausn sé nú í sjónmáli eru nefndarmenn ekki sáttir
við hversu langt til fjalla reiðvegur um Reykjahverfi er kominn. Ákveðið var þó
að samþykkja tillöguna ,en taka um leið fram að við lítum á þessa leið sem lausn
á reiðleið til Reykjavíkur um Hólmsheiði en ekki reiðleið um
Reykjahverfi.





Reiðleið um Tungumela var samþykkt á deiliskipulagi
svæðisinns, en hún er mikilvægur hlekkur í reiðleiðinni upp í
kjós.





Síðasta vetur fékkst lausn á reiðleið fram hjá fornmynjum á
Blikastaðanesi og var þá þegar hafist handa við að klára hringinn. Óskað var
eftir efni til framkvæmdarinnar á svæði golfklúbbsins Keilis. Þeirri ósk var vel
tekið og fékk félagið það efni sem þurfti í undirbyggingu reiðgötunnar. Mjög
gott samstarf hefur verið milli forsvarsmanna golfara og hestamanna um
skipulagsmál á Blikastaðanesi.





Í vor tók Jóhannes Oddsson við starfi
Guðmundar Jónssonar í Stóru reiðveganefndinni. Jóhannes hefur fengið Sæmund
Eiríksson sem sinn varamann. Meðal verkefna nefndarinnar eru smíði brúar fyrir
hestamenn meðfram Leirvogsá undir Vesturlandsveg, samkvæmt teikningum sem
Sæmundur teiknaði og lagðar voru fyrir fulltrúa vegagerðarinnar á fundi 6 apríl.
Þetta mál er nú í vinnslu hjá skipulagsyfirvöldum í Mosfellsbæ. Á okkar svæði
fengust einnig fjárveitingar til framkvæmda í Kjós og milli Laxness og
Skeggjastaða.





Í Mosfellsdal hefur golfklúbburinn við Bakkakot haft uppi
hugmyndir um stórfelldar breytingar á reið og gönguleið með Norðurá.
Reiðveganednd Harðar hefur fylgst grannt með framvindu þessara mála og munu
vonandi halda áfram að verja reiðleiðir okkar
hestamanna.





Flugvallahringurinn er orðin ein vinsælasta reiðgatan okkar
og höfum við lagt áherslu á að bæta hana eftir því sem efni leifa.


Sú
áherslubreyting hefur orðið á að nú leggjum við meiri áherslu á gæði en lengd
við reiðvegagerð og er það ákveðin stefnubreyting, en hingað til höfum við reynt
að láta reiðvegaféð duga í sem lengstar vegalengdir. Nú er reiðvegakerfið orðið
það víðáttumikið að við getum farið að bæta yfirborð þeirra reiðvega sem fyrir
eru þó því sé víðs fjarri að vinnu við nýjar leiðir sé hætt.





Eins og
flestum er kunnugt eru fyrirhugaðar miklar framkvæmdir á Blikastaðanesi á
næstunni vegna malarnáms og gerð golfvallar sem mun teygja sig fram á nesið.
Þetta er mikilvæg reiðleið og því höfum við haft nokkrar áhyggjur af því að
reiðleiðin myndi lokast af á meðan á framkvæmdum stendur, eða beinlínis verða
hættuleg vegna sprenginga og annars hávaða. Stjórn Harðar og reiðveganefnd hafa
átt fundi með bæjaryfirvöldum og skrifað bréf sem lýsa þessum áhyggjum okkar.
Bæjarstjórnin hefur tekið okkur vel í þessu máli og ákveðið að reiðleiðinni
verði haldið opinni, en til þess að svo megi verða og fyllsta öryggis gætt hafa
eftirfarandi atriði verið samþykkt:





1. Reiðgatan umhverfis
Blikastaðanesið verði fullgerð strax og veður leifa, þannig verði opinn sá
valkostur að ríða fyrir nesið. Framkvæmdum við þessa reiðleið verður flýtt og að
fullu lokið í síðasta lagi fyrir 1. des.2005.


2. Reiðgatan sem liggur þvert
yfir nesið verður færð áður en núverandi leið verður lokað.


3. Sprengingar
eru ekki leyfðar frá 1. maí – 15. ágúst. Þá er reyndar verið að hugsa um
fuglalífið, en við njótum góðs af því líka.


4. Sprengingar verða aðeins
leyfðar tvisvar sinnum á ári, í 4 samfelldar vikur í senn. 4 vikur eru að hausti
til, þannig að við þurfum minni áhyggjur að hafa af því, en 4 vikur eru á “okkar
tíma”. Ekki má sprengja um helgar og ekki eftir kl. 18.00 á daginn. Það eru því
um 20 dagar á tímabilinu fyrir klukkan 18.00 sem hætta getur skapast. Til að
mæta því hefur verið ákveðið að setja upp stór viðvörunarskilti þar sem kemur
greinilega fram hvenær sprengt er, en auk þess skuldbindur verktakinn sig til
þess að staðsetja menn við reiðstíginn í þeirri fjarlægð sem trygg er fyrir
hestafólk og loka reiðleiðinni rétt á meðan sprengt er. Hver þessi fjarlægð
verður þarf að meta þegar sprengingar hefjast þar sem mjög mismunandi er eftir
jarðlögum hvernig höggbylgjan frá sprengingunum berst.


5. Umferð verður um
svæðið allan ársins hring. Til að draga úr hættu af þeirri umferð verður byggð
mön sem skilur að akveginn og reiðstíginn þar sem þeir liggja samsíða. Umferðin
mun aðeins krossa reiðveginn á einum stað og þar verður skýr biðskylda á akandi
umferð, þ.e. ríðandi og gangandi eiga réttinn.





Við munum vera í sambandi
við bæjaryfirvöld um framkvæmd þessara atriða og leggja áherslu á að kynna stöðu
mála hverju sinni þannig að allir geti notið reiðleiðarinnar í fyllsta
öryggi.





Reiðvegaefni er dýrt, sérstaklega það efni sem hentar í gott
yfirborðslag. Við höfum því í samstarfi við áhaldahúsið komið upp safnstað fyrir
það efni sem til fellur þegar skipt er um möl í hestagerðunum við hesthúsin.
Staðurinn er greinilega merktur, en þar er að sjálfsögðu ekki heimilt að losa
annað efni eða rusl.








Skýrsla reiðhallarnefndar





Reiðhallarnefnd
var skipuð eftirtöldum aðilum:





Marteinn Hjatested


Guðjón
Magnússon


Konráð Adlphsson





Sá mikkli áfangasigur náðist í
reiðhallarmálum að Landslag, teiknistofa Reynis Vilhjálmssonar var fengið það
verkefni að breyta deiliskipulagi svæðisinns í samráði við okkur þannig að koma
mætti fyrir stórri reiðhöll. Deiliskipulagsvinnan fór fram á vormánuðum og var
deiliskipulagið aulýst og samþykkt án athugasemda í síðasta mánuði. Þetta þýðir
í reynd að nú er hægt að hefja fjármögnun verkefnisinns af
alvöru.











FERÐANEFND





Fararstjóri:


Svanur Hlíðdal
Magnússon








FJÁRÖFLUNARNEFND





Um fjáröflun sá:


Sigurður
Teitsson





Fjár- og styrkjaöflun var þyngri en undanfarin ár en erfiðlega
gekk að fá styrki til félagsins en oft áður. Eflaust er áreitið orðið mikið á
fyrirtækin og margir að leita eftir fjárstuðningi. Niðurstaðan var þó þokkaleg
þegar leið á vorið og tókst m.a. að fármagna vegleg verðlaun í oppnu
gæðingakeppni ársinns.


Það virðist ljóst að breyta þarf um aðferðir eða
finna nýjar leiðir til fjáröflunar í framtíðinni þar sem hin hefðbundna
styrktarleið virðist vera að lokast.





Unnið er að útgáfu reiðkorts af
reiðleiðum í Mosfellsbæ sem hugmyndin er að fá styrktaraðila á kortið, einn eða
fleiri. Kortið mun koma út um áramótin.





MÓTANEFND





Mótanefnd var
skipuð eftirtöldum aðilum:


Páll Viktorsson








VALLARNEFND





Um
vallarnefnd sá:


Halldór Guðjónsson





Vellirnir komu illa undan vetri og
var leitað til bæjaryfirvalda um skyndistyrk til að lagfæra þá. Bærinn lagði til
1,5 milljónir þannig að hægt yrði að lagfæra vellina. Skipt var um grindverk við
skeiðbrautina, en gamla girðingin var að niðurlotum komin. Framundan er að ljúka
við viðhald vallanna og gera bílastæði og bæta aðstöðu áhorfenda við neðri
völlinn.





SKEMMTINEFND





Um skemmtinefnd sá:


Jóhann Þór
Jóhannesson








DEILD HESTHÚSEIGENDA





Deild hesthúseigenda var
skipuð eftirtöldum aðilum:





Marteinn Hjaltested


Birgir Hólm
Ólafsson


Hinrik Gylfason


Konráð Adolphsson


Sölvi Fannar
Sigurðsson








HEIMASÍÐA OG ÚTGÁFA FÉLAGSRITS





Um heimasíðu og
útgáfu félagsrits sáu:





Guðjón Magnússon


Aðalheiður Anna
Guðjónsdóttir





Heimasíðan var uppfærð reglulega og varð lífleg eins og
heimasíður eiga að vera. Heimsóknir á síðuna margfölduðust og voru xxx á dag
þegar mest var.


Útgáfa félagsrits hófst á ný eftir nokkurt hlé, en árið áður
var látið reyna á það hvort heimasíðan gæti tekið yfir hlutverk fréttablaðsinns.
Það kom hins vegar í ljós að ekki eru allir með netaðgang, og auk þess er gott
að hafa prentað blað með dagskránni og því helsta sem er að gerast við hendina.
Blaðið kom út mánaðarlega á meðan hestar voru á húsi. Ljósritunarstofan NÓN á
Suðurlandsbraut styrkir félagið með því að prenta blaðið frítt fyrir okkur, nú
síðast í lit.











HARÐARBÓL – REKSTUR





Um rekstur Harðarbóls
sá:


Guðmundur Björgvinsson





Rekstur Harðarbóls var líflegur í ár,
einkum í kringum mótahald, en þá voru seldar veitingar á staðnum. Settur var upp
skjávarpi til að auðvelda fundarhald og fræðslu í salnum og var hann mikið
notaður í sambandi við fræðslufundi á vegum félagsinns. Framundan er létt
viðhaldsvinna á húsnæðinu, en það þarf að mála og ef til vill skipta um
gluggatjöld.





HARÐARBÓL – ÚTLEIGA





Um útleigu Harðarbóls, bókanir
sáu:


Rósa Rögnvaldsdóttir


Kolbrún Haraldsdóttir





Harðarból var að
vanda leigt út til ýmiskonar veisluhalda og studdi þannig við fjárhag
félagsinns.





FÉLAGSKJÖRNIR SKOÐUNARMENN





Félagskjörnir skoðunarmenn
félagsinns voru:


Leifur Kr. Jóhanesson


Birgir Hólm








KYNBÓTADEILD
HARÐAR