Fundurinn var haldinn í
Harðarbóli þann 26.10. kl. 8.00
Um 35 manns mættu á fundinn.
1.
Formaður setur fundinn og biður viðstadda velkomna. Hann tilnefndi Martein
Magnússon sem fundarstjóra og Guðjón Magnússon sem ritara og var það samþykkt
einróma.
2. Marteinn Magnússon tekur við fundarstjórn og lýsir fundinn rétt
boðaðann. Hefðbundin aðalfundarstörf. Tillaga að því að flytja dagskrá Harðar og
hesthúseigendadeildarinnar saman. Samþykkt.
3. Marteinn Hjaltested flytur
skýrslu stjórnar. Starfið var með hefðbundnu móti. Gott samstarf við
bæjaryfirvöld og bæjarstarfsmenn, en margt áorkaðist á árinu, reiðhöll komin á
deiliskipulag, götur í neðra hverfi verða lagfærðar fyrir áramót,
æskulýðsstarfið fær aukin fjárframlög og peningar fengust til að bæta vellina.
Mótanefnd hefur verið með fyrirmyndarstarf, Siggi Straumur gerði það gott á
heimsmeistaramótinu. Framkvæmdir á Blikastaðanesi eru nú í fullum gangi, en
lofað hefur verið að tekið verði tillit til hestamanna við þær framkvæmdir.
Barna og unglinastarfið var með líflegasta móti, en um 20 börn tóku
knapamerkjapróf. Reiðvegagerð þokast áfram, en sú breyting hefur orðið á
stefnumörkun að nú leggjum við meiri áherslu á gæði en magn. Fjármögnun
reiðhallar er í fullum gangi, en hitaveitumál ganga hægt fyrir sig.
Bæjarfulltrúum og starfsmönnum bæjarinns var boðið í reiðtúr sem tókst mjög
vel.
4. Konráð flytur skýrslu hesthúseigendadeildar Harðar sem var svört.
Bæjaryfirvöld virðast lítinn skilning hafa á málefnum hesthúseigenda,
stjórnsýslukærur vegna holræsagjalds sem sett var á hesthúseigendur fyrir mörgum
árum síðan þó ekkert sé holræsið. Sveitafélagið svarar ekki bréfum deildarinnar
og göturnar í neðra hverfi eru ekki enn komnar í lag.
5. Leifur Kr.
Jóhannsson skýrir reikninga í fjarveru gjaldkera, en hann er erlendis.
Bókhaldsmálin eru komin í fastar skorður og eru reikningar nú færðir af
bókhaldsstofu. Tap var á árinu 2004 upp á 949.439.- Eignir eru samtals
27.001.948.- Launagreiðslur til dómara þurfa að vera í fastari skorðum og ekki á
að greiða þeim nema fá undirskrifaða kvittun í staðinn, en þetta er mál sem LH
þarf að taka upp á víðum grundvelli. Staðarhaldari í Harðarbóli þarf að skila
inn lista yfir sölu og útgjöld til gjaldkera svo hægt sé að færa tekjuliðina á
rétta lykla í bókhaldi. 9 mánaða milliuppgjör liggur frammi í ársskýrslu.
6.
Birgir Hólm gjaldkeri hesthúseigendadeildar les upp reikninga deildarinnar.
Slæmt ástand hefur verið á fjármálum deildarinnar, en félagsgjöld voru m.a. ekki
innheimt árið 2003, Búið er að koma reikningum í gott lag núna. Ekki er búið að
senda út greiðsluseðla fyrir árið í ár. Gjöldin eru 12.000.- kr. á hverja
hesthúsalengju. Reikningar fyrir árið 2003 lesnir upp, en skoðunarmenn treysta
sér ekki til að samþykkja þá.
7. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
félagsins. Friðþjófur Þorkelsson spyr um reiðvegafé og í hvað það hafi farið.
Upplýst var að megnið af reiðvegafé ársins 2004 fór í að gera flugvallahringinn.
Engar athugasemdir voru gerðar við skýrslu stjórnar. Ársreikningar Harðar voru
samþykktir einróma. Ársreikningar hesthúseigendadeildar Harðar fyrir árið 2003
voru samþykktir með öllum atkvæðum gegn einu. . Ársreikningar
hesthúseigendadeildar Harðar fyrir árið 2004 voru samþykktir með öllum
atkvæðum.
8. Marteinn Haltested fer yfir rekstraráætlun félagsins fyrir árið
2005-2006, en þar kemur fram að reiknað er með talsverðum hagnaði á því ári.
Rekstraráætlunin var samþykkt athugasemdalaust.
9. Árgjald fyrir næsta ár.
Tillaga liggur fyrir frá stjórn um að hækka árgjald um 1.000.- krónur á komandi
ári. Unglingagjald verður óbreytt. Samþykkt einróma.
10. Lagabreytingar.
Stjórnin hefur lagt fram tillögu um að breyta reikningsári félagsins þannig að
hver stjórn skili af sér samþykktum reikningum á aðalfundi. Í milltíðinni hefur
komið í ljós að ÍSÍ hefur lagt áherslu á að öll íþróttafélögin skili ársskýrslum
á sambærilegan hátt. Stjórnin dregur því tillöguna til baka.
11. Kosning
stjórnar: Formaður var endurkjörinn, Marteinn Hjaltested. Kolbrún Haraldsdóttir
gengur úr stjórn og þökkum við henni frábærlega vel unnin störf. Sigurður
Teitsson gengur úr varastjórn og sest í aðalstjórn. Að öðru leiti gefur stjórnin
kost á sér til endurkjörs. Samþykkt einróma. Í varastjórn leggur stjórnin til að
Konráð Adolphsson, Þórir Örn Grétarsson og Oddrún Ýr Sigurðardóttir. Samþykkt
einróma.
Í deild hesthúseigendafélagsins voru kosnir einróma þeir Birgir
Hólm, Dagur Benónísson, Sölvi Sigurðsson og Konráð Adolphsson. Varamaður er
Ingólfur Sigurþórsson.
12. Skoðunarmenn félagsinns voru endurkjörnir þeir
Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm.
13. Fulltrúar á þing UMSK voru kjörnir
eiróma þau Marteinn Hjaltested, Guðrún Ólöf Jónsdóttir, Maríanna Eiríksson og
Kolbrún Haraldsdóttir.
14. Fulltrúar á LH þing voru kjörnir einróma þau
Marteinn Hjaltested, Guðjón Magnússon, Guðmundur Björgvinsson, Þröstur Karlsson,
Kolbrún Haraldsdóttir, Marteinn Magnússon og Páll Viktorsson. Varamenn voru
kjörnir þeir Birgir Hólm, Sigurður Teitsson og Sölvi Sigurðsson.
15. Nú var
gefinn kostur á að ræða önnur mál. Friðþjófur Þorkelsson steig í pontu og las
upp uppbyggilega gagnrýni sem birt verður í heild sinni í næsta félagsriti, en
þar kemur m.a. fram að hann telur að upplýsingaflæði um atrburði félagsins mætti
bæta, losaraleg stjórn hafi verið á nokkrum atburðum svo sem Kjötsúpureið og
Leirugleði. Hann vill hrósa stjórninni og er ánægður með fréttabréfið og
laugardags fræðslufundina, en kynna má betur hver er flytjandi efnis hverju
sinni.
16. Gömul bílhræ á svæðinu, gerð verði gangskör í því að snyrta
svæðið, kerrustæðin eru ekki ruslahaugar.
17. Guðrún Ólöf flytur kveðjur frá
kvennadeild Harðar, en þar er kominn nýr formaður, Kristín Halldórsdóttir sem
tók sig svo vel út á forsíðu síðasta fréttabréfs. Langbrókarmótið var haldið
aftur og tókst vel. Erfiðleikar við að boða fólk á hina ýmsu viðburði og meira
þarf að gera til að efla félagsandann. Hún bendir einnig á þann augljósa galla
að stjórnin er kvennmannslaus.
18. Margrét Jónsdóttir spyr hver á
upplýsingatöflurnar tvær á félagssvæðinu og bendir á að þær mætti nota meira.
Töflurnar eru í sameign Harðar og Hesthúseigendadeildarinnar.
19. Á blaðsíðu
8 í ársskýrlunni er æskulýðsnenfd ranglega nefnd
unglinganefnd.
Aðalfundur 2005
Aðalfundur Hestamannafélagsinns Harðar árið 2005

Fleira ver ekki rætt og fundi slitið.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn