Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 08.12.2004

14. mars 2007 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður








Stjórnarfundur 8.desember
2004











Fyrsti fundur nýrrar stjórnar





Fundur hefst kl.
20.00





Mættir voru:





Ása Magnúsdóttir asa@isb.is


Guðjón Magnússon
gudjon@arkform.is


Guðmundur Björgvinsson gudmbj@simi.is


Halldór
Guðjónsson


Kolbrún Haraldsdóttir kolbrunh@talnet.is


Konráð Adolphsson
kado@internet.is


Marteinn Hjaltested leahelga@mi.is


Oddrún Ýr
Sigurðardóttir oddrun@husdyragardur.is


Sigurður Teitsson
sigurdurht@simnet.is








1. Nýr formaður, Marteinn Hjaltested býður nýja
stjórn velkomna til starfa.


2. Farið yfir mönnun nefnda félagsins og gerðar
tillögur að fólki í hverja nefnd. Tilnefndir forsvarsmenn eru
þessir:


Æskulýðsnefnd, Ása Magnúsdóttir verður áfram í forsvari.


Beitar-
og umhverfisnefnd, Valdimar Kristinsson.


Ferðanefnd, Svanur
Magnússon


Fjáröflunarnefnd, Sigurður Teitsson


Ritstjórn heimasíðu og
útgáfu félagsrits, Guðjón Magnússon


Fræðslunefnd, Guðjón Magnússon og Oddrún
Ýr Sigurðardóttir


Veitinganefnd, Guðmundur Björgvinsson


Mótanefnd,
nokkrir félagsmenn voru nefndir til leiks, en eftir er að ræða við
þá.


Reiðveganefnd, Guðmundur Jónsson, reiknað er með að nefndin verði
óbreytt.


Vallarnefnd, Halldór Guðjónsson


Skemmtinefnd, óbreytt frá í
fyrra, en hét þá árshátíðarnefnd.


Hesthúseigendafélag, Marteinn
Hjaltested.


Bygginganefnd, Marteinn Hjaltested.


Félagatal, Kolbrún
Haraldsdóttir.


Kynbótanefnd, nefndin verði gerð virk, en eftir er að finna
forsvarsmann.


Tölvunörd, mann vantar í þessa mikilvægu stöðu.


3. Gera þarf
dagskrá með öllum atburðum vetrarins og gæta þess að atburðir stangist ekki á.
Skila þarf inn mótaskrá fyrir 10. des. eða fyrir vikulok, svo auðséð er að mótin
munu ráða miklu um dagsetningu annarra viðburða. Þó er búið að samræma mótin við
æskulýðsstarfið.


4. Búið er að panta plaströr til að afmarka vellina með.
Plaströrin eru af sömu gerð og notuð voru við vallargerðina á Hellu fyrir
landsmótið. Rætt var um mikilvægi þess að hægt verði að koma fyrir merkjum,
“logóum”, styrktaraðila á smekklegan hátt á vallarsvæðinu.


5. Fyrirspurn
hefur borist frá Magnúsi á Blikastöðum. Hann spyr hvort hann geti fengið
félagsheimilið á leigu í vetur. Hann mun þá taka að sér allan veitingarekstur í
húsinu nema þær uppákomur sem við sjálf viljum halda og yrðu þær þá undanskildar
í leigusamningi. Þetta gæti orðið jákvætt fyrir félagsstarfið þar sem húsið yrði
betur nýtt, bæði af félagsmönnum og gestum. Reiknað er með að vín- og kaffisala
verði um helgar. Það mæltist þó ekki vel fyrir meðal stjórnarmanna að þarna yrði
rekinn krá fram yfir miðnæti í þeim dúr sem er á Heimsenda, það yrði of mikil
ánýðsla á húsnæðinu. Marteini falið að halda áfram þreifingum við Magnús um
útfærslur, leiguverð (og tryggingar).


6. Ákveðið að stjórnarfundir verði
fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 20.00, næsti fundur verður því miðvikudaginn
5.janúar.


7. Reiðvegagerð verði yfirfarin og reiðvegir í Hafnarfirði skoðaðir
sérstaklega þar sem þeir þykja öðrum reiðvegum betri. Nokkuð hefur verið kvartað
yfir því að reiðvegirnir okkar séu grýttir og mjúkir (sendnir) þannig að hestar
fái höfmör og önnur fótamein og gangi víða illa í gljúpu yfirborðsefninu.
Marteinn og Guðjón skoði málið hjá nágrgannasveitafélaginu og vegagerðinni, en
hún ætlaði að gefa út verklýsingar af reiðvegagerð. Það kom fram að ef gera ætti
vegina eins og í Hafnarfirði yrði að sækja efni í þá út fyrir
sveitafélagið.


8. Samþykkt að bjóða félagsmönnum upp á dreifingu
félagsgjalda, ýmist á beingreiðslur eða á kreditkort. Stefnt verði að því að
innheimta það sem nú er útistandandi af félagsgjöldum með slíkum samningum.
Einnig að nýir félagar, auk eldri félaga, fái að velja það greiðsluform sem þeim
hentar best.


9. Mikilvægt að auka sýnileika félagsins með öllum tiltækum
ráðum. Rætt um að gera dagatal fyrir félaga og áhugasama þar sem fram kemur
dagskrá félagsins, Ása upplýsti að lúðrasveit bæjarins gæfi nú þegar út slíkt
dagatal og dreifði til bæjarbúa. Óheppilegt væri að félagasamtök væru með sömu
aðferðir við kynningu og fjáröflun. Aðrir fundarmenn minntust þess ekki að hafa
fengið eða séð slíkt dagatal, enda spurning hvort ekki sé í lagi að við dreifum
dagatali meðal okkar félagsmanna og þeirra sem áhuga hafa á starfi okkar þó
annað eða önnur félög bæjarinns geri það líka.


10. Fjölskyldudagurinn verði
haldinn í vor. Þessi dagur heppnaðist gífurlega vel þegar hann var haldinn
síðast og vakti mikla athygli. Þá var gestum og gangandi boðið upp á grill,
reitt var undir krökkum, trúður kom í heimsókn, leiktæki voru fyrir krakkana og
margt fleira. Í tengslum við þennan dag væri einnig hægt að halda skiptimarkað á
reiðfötum og öðru reiðdóti sem krakkar eru vaxnir upp úr.


11. Gera meira
fyrir hinn almenna félagsmann, en farið er að bera á því að mikið er gert fyrir
keppnisfólkið en minna fyrir aðra hópa. Þannig væri hægt að halda almenn
reiðnámskeið og þjálfun fyrir félagsmenn á ýmsum stigum hestamennskunnar.


12.
Ása stakk upp á að kynna væntanlegt landsmótssvæði á Vindheimamelum fyrir
keppnisfólkinu okkar með því að efna til félagsferðar þangað í sumar. Við gætum
þá sett upp lítið mót og keppt við heimamenn.


13. Guðmundur kynnti hugmynd að
fyrirkomulagi sumarmóta þar sem hestamannafélögin á suð-vesturhorninu skiptust á
að halda eitt mót í mánuði yfir sumartímann, samtals 3 mót á ári.


14.
Reiðhöllin er leigð af bænum til afnota fyrir æskulýðsstarfið. Öðrum
félagsmönnum er heimilt að nota hana á tímabilinu frá 17 til 22 á virkum dögum
þegar reiðnámskeið á vegum æskulýðsnefndar eru ekki í gangi. Öðrum reiðkennurum
er óheimilt að nota reiðhöllina til lokaðrar kennslu á þeim tímum sem félagið er
með hana á leigu nema í beinni samvinnu við félagið, enda innheimti félagið
þátttökugjöld af félagsmönnum sem verður stillt mjög í hóf og greiðir
reiðkennara laun. Fræðslunefnd mun sjá um framkvæmd.


15. Ákveðið var að halda
sérstakt nefndarkvöld þann 15. janúar nk. fyrir alla stjórnar og nefndarmenn.



16. Ákveðið að þakka fráförnum formönnum félagsins störfin með því að bjóða
þeim sérstaklega á árshátíð félagsins.


17. Ákveðið að færa bæjarstjóranum
Ragnheiði Ríkharðsdóttur gjöf sem þakklætisvott fyrir þann skilning sem hún
hefur sýnt félaginu, nú síðast með stuðningi sýnum við byggingu reiðhallar.
Ákveðið að gjöfin yrði spjaldasafn á harðviðarfæti, sem Oddi hefur útbúið eftir
heilræðum sem Konráð Adolphsson hefur safnað saman. Á fótinn verður komið fyrir
látúnsplötu með áletrun sem gæti hljóðað eitthvað á þessa leið: “með kveðju
Hestamannafélagið Hörður”











Fleira var ekki gert og fundi slitið
kl. 22.20