Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Opið íþróttamót í Sörla – punktamót fyrir LM2006

8. júní 2006 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Sörli í samvinnu við fyriræki á höfuðborgarsvæðinu ætlar að halda opið hestaíþróttamót dagana 14. – 16. júní nk.

Keppnisgreinar…

▪ Tölt
▪ Fjórgangur
▪ Fimmgangur
▪ 100 metra fljúgandi skeið
▪ Slaktaumatölt
▪ Gæðingaskeið

Flokkar
Keppt verður í 1. flokki (Opinn flokkur), 2. flokki (áhugmannaflokkur) og U-22 (ungmenni+unglingar+börn).

Síðasti sjens
Mótið er síðasti sjens að ná í punkta fyrir tölt fyrir Landsmót. Auk þess verður rafræn tímataka en með því eru þetta síðustu skeiðkappreiðar til að ná gildandi tíma fyrir Landsmót í 100 metra fljúgandi skeiði.

Skráning
Skráning á mótið verður mánudaginn 12. júní frá kl. 20-22 í dómpalli á Sörlastöðum í Hafnarfirði og símum 847-2645, 898-1713, 898-3031 og 864-1315. Posi á staðnum. Einnig er hægt að leggja inn á reikning 0525-26-1580 kt. 300380-5819 og senda greiðslukvittun á hanness@hi.is

Hesthúspláss á meðan móti stendur
Möguleiki verður á því að fá pláss fyrir hesta í nálægum hesthúsum á meðan móti stendur gegn vægu gjaldi. Fólk verður að sjá um að koma með spæni sjálft en hey verður skaffað.

Þak á skráningargjöldum – Verðlaunapottur
Þúsund krónur af hverri skráningu fara í verðlaunapott sem skiptist á milli knapa sem lenda í 1.-3. sæti. Skráningargjald er kr. 3.000 í hverja grein en þak verður á skráningargjöldunum þannig að sami knapi borgar mest fyrir fjórar skráningar (kr. 12.000) en svo 1000 krónur aukalega fyrir hverja skráningu umfram það (sem fer í verðlaunapottinn).

Verðlaun – Aukaverðlaun
Glæsileg verðlaun verða á mótinu; Farandbikarar, eignabikarar og verðlaunapeningar. Glæsileg aukaverðlaun verða í boði. Þar á meðal vinningar frá Húsasmiðjunni og verið er að vinna í því að allir þátttakendur sem komast í úrslit fari í pott þar sem aðalvinningur er flugmiði til Evrópu. Allir þátttakendur í U-22 flokknum fara í pott þar sem dregin verða út glæsilegt trampólín frá Europris.

Drög að dagskrá
Miðvikudagur 14. júní kl. 18:00 FORKEPPNI
-Tölt forkeppni
-Slaktaumatölt
-Gæðingaskeið
-100 metra fljúgandi skeið

Fimmtudagur 15. júní kl 18:00 FORKEPPNI
-Fjórgangur forkeppni
-Fimmgangur forkeppni

Föstudagur 16. júní kl. 17:00 ÚRSLIT
17:00 Fjórgangur ungmenni úrslit
17:30 Fjórgangur 2. flokkur úrslit
18:00 Fjórgangur 1. flokkur úrslit
18:30 Fimmgangur ungmenni úrslit
19:00 MATARHLÉ
19:30 Fimmgangur 2. flokkur úrslit
20:00 Fimmgangur 1. flokkur úrslit
20:30 Slaktaumatölt
21:00 Tölt ungmenni úrslit
21:30 Tölt 2. flokkur úrslit
22:00 Tölt 1. flokkur úrslit