Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Fjölskyldureiðtúrar

10. janúar 2003 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Eru fyrirhugaðir fyrsta sunnudag í hverjum mánuði kl. 16:00 Hist verður hjá nýja staurnum og er markmiðið að foreldrar eigi góðan reiðtúr með börnum sínum og Harðarfélögum. Tilkynning um reiðtúrana verður hengd upp á staur á appelsínugulri auglýsingu.
 Framvegis verða allar tilkynningar frá barna- og unglinganefnd á appelsínugulum spjöldum svo auðvelt verði að þekkja þær frá öðrum tilkynningum.