Skráning er hafin á bóklega kennslu knapamerkjanna haustið 2026!
Knapamerkin eru frábær grunnur í reiðmennsku þar sem nemandi fer stig af stigi í gegnum þjálfun og meðhöndlun hrossa. Skráning er hafin inn á abler.io/shop/hfhordur og lýkur 1.október
Markmið Knapamerkjanna
• Að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku á íslenskum hestum og hestaíþróttum.
• Að auðvelda aðgengi að skipulagðri og markvissri menntun í reiðmennsku og hestaíþróttum fyrir unga sem aldna.
• Að bæta þekkingu á meðferð, notkun og umhirðu íslenska hestsins á breiðum grunni.
• Knapamerki er mælt með fyrir knapa á 12 aldursári og upp úr
Öll kennsla fer fram í Harðarbóli. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ekki næg þátttaka næst.
Knapamerki 1
4×1,5klst
18:00-19:30
Dagsetningar: (Miðvikudagar)
Október: 29. október (fimmtudagur)
Nóvember: 4. / 11. / 18.
Próf: 23.nóvember 18:00
Verð fullorðnir (>21): 23.000kr
Verð börn/unglingar/ungmenni (<21): 19.550kr
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapinn ætti að öðlast þekkingu á eftirfarandi þáttum:
• Skilji grunnþætti í atferli, eðli og hegðun hesta
• Þekkja líkamsbyggingu og heiti á líkama hestsins
• Kunna skil á helstu öryggisatriðum er lúta að hestahaldi og búnaði fyrir hest og knapa
• Þekkja gangtegundir íslenska hestsins
• Þekkja helstu reiðtygi, notkun þeirra og umhirðu
• Þekki helstu ásetur og rétt taumhald
Knapamerki 2
4×1,5klst
18:30-20:00
Dagsetningar: (Mánudagar)
Október: 26.
Nóvember: 2. / 9. / 16.
Próf: 23.nóvember 18:00
Verð fullorðnir (>21): 23.000kr
Verð börn/unglingar/ungmenni (<21): 19.550kr
Kennari: Sonja Noack
Knapinn ætti að öðlast þekkingu á eftirfarandi þáttum:
• Sögu íslenska hestsins
• Réttu viðhorfi til hestsins með tilliti til skaps hans og skynjunar
• Þekkja helstu ábendingar og notkun þeirra
• Vita hvernig á að ríða hestinum áfram og stoppa hann
• Þekkja reiðvöllinn og notkun hans
• Kunna skil á réttu taumhaldi og taumsambandi
• Þekkja grunnatriði sem gilda þegar unnið er við hönd
• Þekkja æfinguna “að kyssa ístöð”
• Þekkja einfaldar gangskiptingar
• Þekkja reglur sem gilda um útreiðar á víðavangi
Knapamerki 3
6×1,5klst
19:30-21:00 (18:00-19:30 fyrstu tveir tímar)
Dagsetningar (miðvikudagar):
Október: 14., 21. 29. (fimmtudagur)
Nóvember: 4., 11., 18.
Próf: 23.nóvember 18:00
Verð fullorðnir (>21): 33.000kr
Verð börn/unglingar/ungmenni (<21): 28.100kr
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapinn ætti að öðlast þekkingu á eftirfarandi þáttum:
• Þekkja vel allar gangtegundir íslenska hestsins
• Kunna skil á helstu þáttum er lúta að fóðrun hesta og umhirðu
• Þekkja rólegan hest frá spenntum
• Þekkja helstu þætti í byggingu hestsins og þvi hvernig hann hreyfir sig rétt
• Þekkja helstu þjálfunarstig og hugtök þeim tengd
• Þekkja einfaldar fimiæfingar og grundvallaratriði þeirra
• Vita hvað liggur til grundvallar gangtegundaþjálfun
• Vita hvernig á að undirbúa og ríða hesti yfir slár og hindranir
Knapamerki 4
7×1,5klst
19:30-21:00 (18:00-19:30 fyrstu þrjá tímana)
Dagsetningar (mánudagar):
Október: 5., 12., 19. 26.
Nóvember: 2., 9., 16.
Próf: 23.nóvember 18:00
Verð fullorðnir (>21): 38.000kr
Verð börn/unglingar/ungmenni (<21): 32.300kr
Kennari: Sonja Noack
Knapinn ætti að öðlast þekkingu á eftirfarandi þáttum:
• Markmiðssetningu og hugþjálfun
• Réttri líkamsbeitingu knapans og þjálfun hans
• Þekkja helstu staðreyndir er lúta að heilbrigði og heilsufari hesta
• Þekkja helstu staðreyndir er lúta að umhirðu fóta og járningum
• Þekkja vel mismunandi þjálfunarstig og hugtök þeim tengd
• Þekkja vel æfingar er lúta að því að bæta jafnvægi hestsins og skilja hvað liggur þeim til grundvallar
• Þekkja grundvallaratriði hringteyminga og teyminga á hesti
Knapamerki 5
Endilega hafið samband við kennari@hordur.is ef áhugi er á Knapamerki 5
Knapamerki Bóklegt 2026
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn