Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Frumtamninganámskeið í Herði haustið 2026

19. ágúst 2026 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Núna í haust mun hestamannafélagið Hörður standa fyrir frumtamninganámskeiði! Allir eru velkomnir að skrá sig en þó eru félagsmenn í forgangi. Námskeiðið mun samanstanda af einum bóklegum tíma, sýnikennslu og verklegum tímum. Félagið hefur til umráða hesthús þar sem nemendur geta haft hestana en innifalið í námskeiðsverðinu verður hesthúspláss, hey, spænir, kennsla og járning á hestinum. Einnig verður í boði að skrá sig ekki með plássi inniföldu.

Hugmyndin er að nemendur verði saman í hesthúsi og geti hjálpast að við gjafir og slíkt í samráði við kennara. Námskeiðið mun hefjast fimmtudaginn 10.september á bóklegum tíma í Harðarbóli þar sem farið verður frekar í skipulag námskeiðsins og það helsta sem við kemur frumtamningu á hrossum. Helgina 12.-13.september verða tryppin tekin inn og í framhaldinu verður sýnikennsla á mánudeginum 14.september þar sem farið verður yfir helstu grunn atriðin. Verkleg kennsla hefst svo þriðjudaginn 15.september og verður þrisvar í viku (mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga) það sem af er af námskeiði. Nemandi vinnur sjálfstætt með hestinn þess á milli í samráði við kennara.

Það verður dýralæknir til taks föstudaginn 18.september og verður í boði að láta raspa/taka úlfstennur fyrir þá sem vilja og er mælt með að eigendur láti gera. Gjaldið fyrir það er ekki innifalið í námskeiðinu.

Kennsla fer fram í Blíðubakkahöll, úti og í Stóru höll en kennt verður í 3-4 manna hópum og hver nemandi kemur með eigin hest. Gert er ráð fyrir að nemandi sé með sama hestinn út námskeiðið. Námskeiðinu líkur svo á skilasýningu þann 10.október fyrir áhugasama! Þrif og skil á hesthúsi fer fram sömu helgi.

Aldurstakmark á námskeiðið miðast við 13 ára (Fædd 2013) en nemendur undir 16 ára þurfa alltaf að vera í fylgd með fullorðnum.



Skráning er hafin inn á abler.io/shop/hfhordur og lokar sunnudaginn 6.september



Kennari: Sóllilja Baltasarsdóttir, reiðkennari frá Hólum

Lágmarksfjöldi þátttakenda á námskeiðið er 6 manns, hámarksfjöldi 12

Hægt verður að bóka pakka með og án hesthúsapláss



Pakki A: (ath. Takmarkað pláss)

Hesthúsapláss yfir allt tímabilið

– Hey

– Spænir

Verkleg kennsla

Sýnikennsla

Bókleg kennsla

Járning

Verð: 105.500kr



Pakki B:

Nemandi sér sjálfur um að útvega plássi og öllu því tengdu

Verkleg kennsla

Sýnikennsla

Bókleg kennsla

Járning

Verð: 68.000kr

Dagskrá námskeiðs

10.september – Bóklegt

12-13.september – Tryppi tekin inn

14.september – Sýnikennsla (Stóra höll)

15.september – Verkleg kennsla hefst

17.september – Tryppi járnuð að framan (Leó)

18.september – Röspun fyrir þá sem vilja

20.september – Opinn tími í Blíðubakka án kennara

24.september – Tryppi járnuð að aftan (Leó)

10.október – Skilasýning (Stóra höll)



Verklegt:

September: 15. (BL)/ 17. (BL)/ 21. (BL)/ 22. (BL)/ 24./ 28./ 29.

Október: 1./ 5./ 6./ 8.

20.sept (sunnudagur) opinn tími í Blíðubakkahöll án kennara



Ef spurningar vakna er velkomið að senda póst á kennari@hordur.is

Ath. Hestar eru á ábyrgð eigenda/umráðamanna á meðan námskeiði stendur

Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka, birt með fyrirvara um breytingar/mannleg mistök