Hlaupið verður haldið þann 15. ágúst nk. á milli kl. 09:30 og 15:00 og einsog undanfarin ár verður það að miklu leiti á okkar heimahögum.
Þau verða samt byrjuð að setja upp þrautir frá ca hádegi á föstudeginum. Viðbúið er að eitthvað verði enn fram yfir helgina á svæðinu.
Brautin fer frá Varmárvelli og malbikaða stíginn að Ævintýragarðinum, þaðan áfram að Leirvogstungu og á malarstígnum meðfram Köldukvísl alveg að hesthúsahverfinu. Þaðan upp meðfram hesthúsunum og malarstíginn svo aftur að íþróttasvæðinu.
Það kemur m.a. Jarðvegsgámur við vaðið á Köldukvísl neðan við hesthúsahverfið og einhverjar aðrar þrautir verða á malarstígunum á meðan á þessu stendur.
Drulluhlaup laugardaginn 15.8.2025
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn