Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Landsmót 2026! – Samantekt

19. júlí 2026 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Á ný afstöðnu Landsmóti á Hólum í Hjaltadal átti hestamannafélagið Hörður samtals 43 fulltrúa í mismunandi greinum sem stóðu sig allir með stakri prýði! Veðrið lék við okkur fyrri hluta vikunnar en þó bætti í vind með stöku skúrum eftir því sem leið á. Knapar okkar létu það þó ekki á sig fá og komu vel fram með vel undirbúna hesta, prúðbúnir og sýndu flotta reiðmennsku sem var félaginu til sóma! Í brekkunni var nær alltaf að sjá peysur eða húfur merktar Herði þar sem Harðar fólk var mætt að hvetja okkar knapa áfram!



Fyrir mót hafði félagið látið taka frá skika á rafmagnstjaldsvæðinu þar sem Harðarfólk gat bókað tjaldsvæði saman sem var vel nýtt og mátti sjá Harðar fánann flaggaðan á þeim reit! Á fimmtudeginum var síðan haldið Harðar grill þar sem félagsmenn sem sóttu mótið gátu hist á tjaldsvæðinu og grillað saman sem það var vel sótt!



Vel gekk að ferja hross og knapa norður en félagið fékk til afnota hesthús á Sauðárkróki fyrir yngstu knapana en aðrir dreifðust um Skagafjörðinn. Við viljum þakka keppendum samvinnuna og samheldnina hvað varðaði pláss almennt og sérstaklega á Hólum en þar sem svo mörg hross og knapar koma saman með takmörkuðu plássi er skipulag og samvinna lykilatriði sem svo sannarlega átti við í þessu tilfelli! Samstarf við staðar- og mótshaldara fyrir norðan gekk vel og var upplýsingum miðlað jafn óðum til keppanda.



Í barnaflokk voru níu pör sem riðu forkeppni og þar af voru þrjú sem riðu sig upp í milliriðla! Þaðan af voru þau Jökull og Sunna sem riðu sig upp í B-úrslit og Bryanna reið sig beint upp í A-úrslit. Í B-úrslitum endaði Jökull í þrettánda sæti og Sunna í því tólfta og í A-úrslitum endaði Bryanna í 6.sæti! Aldeilis stórglæsilegur árangur en þess má geta að allir knapar sem riðu fyrir Hörð í barnaflokk voru á keppnisnámskeiði á vegum félagsins í vetur undir handleiðslu Fredricu Fagerlund og Ylfu Guðrúnar sem svo sannarlega skilaði sér hjá þessum ungu efnilegu knöpum!



Í unglingaflokk átti félagið tíu fulltrúa sem komu glæsilega fram fyrir hönd félagsins! Þar reið eitt par sig upp í feikni sterka milliriðla en það var hún Sigríður Fjóla á henni Ekkó og áttu þær flotta sýningu þar. Í ungmennaflokki átti félagið fimm fulltrúa og þar var það hún Guðrún Lilja sem reið sig upp í milliriðla á flottri sýningu á henni Kolgrímu.



Í A- og B-flokki átti félagið samtals tólf fulltrúa, sex í hvorum flokki. Þar átti okkar fólk flottar sýningar en í A-flokk voru tvö pör sem riðu sig upp í milliriðla, þau Fredrica á Salómon og Benedikt á Tobíasi. Þar áttu þau glæsilegar sýningar en Benedikt reið sig upp í B-úrslit á honum Tobíasi þar sem þeir enduðu í 12.sæti!

Í B-flokki áhugamanna sem er nýjung á landsmóti áttum við þrjá glæsilega fulltrúa sem riðu feikna flottar sýningar í þessari hörðu keppni! Sama má segja um A-flokk ungmenna en þar átti félagið einnig þrjá fulltrúa þar sem tveir af þeim riðu sig upp í milliriðla, þær Guðrún Lilja og Sigríður Fjóla. Guðrún Lilja sýndi einnig mikil tilþrif í 250m skeiði þar sem hún endaði í þriðja sæti á honum Kára frá Morastöðum!



Við viljum að lokum þakka öllum keppendum, sjálfboðaliðum, kennurum, aðstandendum, foreldrum og fleirum sem lögðu hönd á plóg að gera þetta Landsmót og undirbúning fram að því svona góðan! Uppskera eftir vinnu vetrarins skein í gegn á þessu móti og við hlökkum til frekara samstarfs á komandi misserum!