Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Reiðmaðurinn I í Mosfellsbæ

12. maí 2026 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Snorri Dal reiðkennari mun kenna reiðmaðurinn I í Mosfellsbæ í

vetur.  Snorri er menntaður reiðkennari frá Háskólinn á Hólum og

hefur starfað við hestamennsku til fjölda ára. Hann hefur um

árabili rekið hestatengt fyrirtæki með fjölskyldu sinni hjá

Hestamannafélaginu Sörla í Hafnafirði og býr yfir víðtækri

reynslu sem hann nýtir markvisst í kennslunni.

Snorri á einnig að baki farsælan feril á keppnisbrautinni. Þar má

meðal má nefna sigur í B-flokki og 150 metra skeiði á Landsmót

hestamanna, tvo Íslandsmeistaratitla í fjórgangi V1 og þátttöku í

úrslitum á bæði heimsmeistara- og Norðurlandamóti._

„Farðu í Reiðmanninn – þú sérð aldrei eftir því.”__

Sigurður Ingi Bjarnason var í reiðmannshóp hjá Snorra Dal

síðastliðin vetur.  Sigurður og Birna voru fengin í viðtal í

Mannlega þáttinn á Rás 1 þar sem Sigurður lýsti reynslu sinni af

náminu. 



Sterkur grunnur fyrir alla knapa

Sigurður segir að námið höfði ekki aðeins til þeirra sem hafi

langa reynslu.

_„Það snýst ekki endilega um hvort maður hafi mikinn grunn eða

sé bara venjulegur reiðmaður,” segir hann og bendir á að skipulag

og utanumhald námsins skipti miklu máli.

„Þú temur sjálfan þig sem knapa”_Hann kemur inn á að nemandinn sé í raun að vinna með sjálfan sig

sem knapa.



_„Þú mætir ekki þarna til að temja hestinn – þú mætir til að

temja sjálfan þig sem knapa,” segir hann.__ _Skipulag, utanumhald og markviss framvindaHann lýsir náminu sem vel uppbyggðu og markvissu.



_„Það sem er svo gott við Reiðmanninn er þetta skipulagða

utanumhald. Maður fylgir námskrá, vinnur verkefni og fer í

stöðumat,” segir Sigurður.__ _Fræðsla, reynsla og dýpri skilningurAð hans mati skiptir fræðslan og kennslan í hestamennsku einnig

miklu máli.



_„Það er mikilvægt að þeir sem kunna lítið í umhirðu hesta

fari í nám eða fái kennslu. Það er betra fyrir alla – bæði fólk

og hesta,” segir hann._Fjölbreytt nám og sterkt samfélag.Sigurður segir jafnframt að námið sé bæði skemmtilegt og

félagslega gefandi.



„Það myndast sterk tengsl í hópnum og úr verður ákveðin

liðsheild,” segir hann.Að lokum hvetur hann áhugasama til að slá til:



_„Farðu í Reiðmanninn – þú sérð aldrei eftir því.”

Sigurður og  Guðný Katla Guðmundsdóttir unnusta hans hafa stundað

reiðmannsnámið saman undanfarin ár.  Katla eins og hún er oftast

kölluð hlaut hæstu samanlagða einkunn í 2. flokk á hesti sínum

Mansa frá Reykjanesi á nýafstöðnu reiðmannsmóti sem haldið var

í glæsilegri aðstöðu Landbúnaðarháskólans á Mið-Fossum í

Borgarfirði. Þau voru bæði að ljúka þriðja árinu í

reiðmannsnáminu, sá hluti námsins einstaklingsmiðaður og lýkur

einmitt með þátttöku á reiðmannsmótinu. Sigurður og Katla

stóðu sig bæði með sóma og komust bæði í úrslit á mótinu.

512671439_23895403950153109_967783893146356584_n.jpg