Skráning er hafin í verklega hluta Knapamerkjanna! Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn hvort sem stefnan er að stunda hana til frístunda eða keppnisíþrótt. Farið er stig af stigi í gegnum grundvallar atriði sem varða þjálfun og umhirðu hesta.
Námskeiðin enda á verklegu prófi og er kennt bæði í Stóru höllinni og Blíðubakkahöll. Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við yfirreiðkennara á kennari@hordur.is eða senda skilaboð á Thelmu Rut.
Knapamerki 1
Knapamerki 1 er fyrsta stigið þar sem knapi á í lok námskeiðs að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Að undirbúa hest rétt fyrir reið
Geti teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
Geti farið á og af baki beggja megin
Kunni rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
Geti setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
Geti framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
Geti skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi ásetu)
Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum
Námskeiðið er tólf skipti, kennt á miðvikudögum og hefst 22.janúar.
Verð fullorðnir: 47.000kr
Verð yngri flokkar (til og með 21 árs): 36.500
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapamerki 2
Á öðru stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðsins að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
Riðið einfaldar gangskiptingar
Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
Geta riðið á slökum taum
Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis
Námskeiðið er tólf skipti, kennt á mánudögum og hefst 13.janúar
Verð fullorðnir: 47.000kr
Verð yngri flokkar: 36.500kr
Kennari: Sonja Noack
Knapamerki 3
Á þriðja stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðs að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Að láta hestinn víkja um fram og afturhluta
Knapinn hafi vald á lóðréttri ásetu, stígandi ásetu og hálfléttri ásetu
Knapinn geti riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
Knapinn geti riðið við slakan taum og langan taum
Knapinn geti látið hestinn fara krossgang áfram og til hliðar á sama tíma
Knapinn hafi gott vald á að nota reiðvöllinn rétt
Knapinn hafi tileinkað sér rétt viðhorf gagnvart hestinum bæði í reiðmennsku og umgengni
Knapinn geti látið hestinn fara rétt yfir slár og stökkva yfir litla hindrun
Námskeiðið er átján skipti, kennt á þriðjudögum og hefst 21.janúar. Einnig verða einhverjir tímar á föstudögum í samráðivið kennara og nemendur.
Verð fullorðnir: 68.250kr
Verð yngri flokkar: 52.500kr
Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Knapamerki 4
Á fjórða stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðs að hafa náð tökum á eftirfarandi atriðum:
Mjög gott vald á lóðréttri og stígandi ásetu og gott jafnvægi á baki hestsins
Hafa nákvæmt og næmt taumhald
Geta riðið réttan krossgang til beggja hliða í góðu jafnvægi
Hafa gott vald á baugavinnu og reiðleiðum á vellinum á feti, tölti/brokki og stökki
Geta riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
Geta látið hestinn stöðva, bíða eftir ábendingu frá knapanum og fara rétt af stað í góðu jafnvægi
Hestur og knapi séu spennulausir, í andlegu og líkamlegu jafnvægi
Námskeiðið er átján skipti, kennt á miðvikudögum og hefst 22.janúar. Einnig verða einhverjir tímar á föstudögum í samráðivið kennara og nemendur.
Verð fullorðnir: 68.250kr
Verð yngri flokkar: 52.500kr
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapamerki 5
Endilega þeir sem hafa áhuga á að taka Knapamerki 5 að hafa samband við yfirreiðkennara á kennari@hordur.is
Knapamerki 2025 – Skráning er hafin!
Verklegt Knapamerki veturinn 2025
Skráning er hafin í verklega hluta Knapamerkjanna! Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn hvort sem stefnan er að stunda hana til frístunda eða keppnisíþrótt. Farið er stig af stigi í gegnum grundvallar atriði sem varða þjálfun og umhirðu hesta.
Námskeiðin enda á verklegu prófi og er kennt bæði í Stóru höllinni og Blíðubakkahöll. Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við yfirreiðkennara á kennari@hordur.is eða senda skilaboð á Thelmu Rut.
Knapamerki 1
Knapamerki 1 er fyrsta stigið þar sem knapi á í lok námskeiðs að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Námskeiðið er tólf skipti, kennt á miðvikudögum og hefst 22.janúar.
Verð fullorðnir: 47.000kr
Verð yngri flokkar (til og með 21 árs): 36.500
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapamerki 2
Á öðru stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðsins að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Námskeiðið er tólf skipti, kennt á mánudögum og hefst 13.janúar
Verð fullorðnir: 47.000kr
Verð yngri flokkar: 36.500kr
Kennari: Sonja Noack
Knapamerki 3
Á þriðja stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðs að hafa náð valdi á eftirfarandi atriðum:
Námskeiðið er átján skipti, kennt á þriðjudögum og hefst 21.janúar. Einnig verða einhverjir tímar á föstudögum í samráðivið kennara og nemendur.
Verð fullorðnir: 68.250kr
Verð yngri flokkar: 52.500kr
Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Knapamerki 4
Á fjórða stigi knapamerkjanna á nemandi í lok námskeiðs að hafa náð tökum á eftirfarandi atriðum:
Námskeiðið er átján skipti, kennt á miðvikudögum og hefst 22.janúar. Einnig verða einhverjir tímar á föstudögum í samráðivið kennara og nemendur.
Verð fullorðnir: 68.250kr
Verð yngri flokkar: 52.500kr
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Knapamerki 5
Endilega þeir sem hafa áhuga á að taka Knapamerki 5 að hafa samband við yfirreiðkennara á kennari@hordur.is
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn