Í kynbótanefnd síðasta árs voru: Eysteinn Leifsson, Einar Frans Ragnarsson og Jón Geir Sigurbjörnsson.
Nefndin stóð ekki fyrir neinum atburði síðasta vetur, en sá að vanda um að halda utan um útreikningana á kynbótarhrossi ársins 2023. Þar er leitað eftir hæst dæmda hrossi úr kynbótadómi þess árs og er ræktað af Harðarfélaga.
Nefndin auglýsti eftir tilnefningum og alls skiluðu sér 5 tilnefningar frá félagsmönnum.
Tilnefningar sem bárust voru:
Gráða frá Dallandi, ræktendur Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir
Hátíð frá Hrímnisholti, ræktendur Rúnar Þór Guðbrandsson og Hulda Sóllilja Aradóttir
Kátína frá Dallandi, ræktendur Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir
Ósmann frá Dallandi, ræktendur Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir
Kristall frá Jarðbrú, ræktandi Þröstur Karlsson
Konfúsíus frá Dallandi, ræktendur Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir
Guttormur frá Dallandi, ræktendur Hestamiðstöðin Dalur
Hæsta kynbótahrossið að þessu sinni var Guttormur frá Dallandi, en hann hlaut 8,44 fyrir byggingu og 8,70 fyrir hæfileika, og í aðaleinkunn 8,61.
Árskýrsla kynbótanefndar Harðar 2024
Í kynbótanefnd síðasta árs voru: Eysteinn Leifsson, Einar Frans Ragnarsson og Jón Geir Sigurbjörnsson.
Nefndin stóð ekki fyrir neinum atburði síðasta vetur, en sá að vanda um að halda utan um útreikningana á kynbótarhrossi ársins 2023. Þar er leitað eftir hæst dæmda hrossi úr kynbótadómi þess árs og er ræktað af Harðarfélaga.
Nefndin auglýsti eftir tilnefningum og alls skiluðu sér 5 tilnefningar frá félagsmönnum.
Tilnefningar sem bárust voru:
Hæsta kynbótahrossið að þessu sinni var Guttormur frá Dallandi, en hann hlaut 8,44 fyrir byggingu og 8,70 fyrir hæfileika, og í aðaleinkunn 8,61.
Fyrir hönd kynbótanendar
Jón Geir Sigurbjörnsson
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn