Það er sönn ánægja að upplýsa hesthúseigendur um að lóðarleigusamningar vegna allra hesthúsalóða á félagssvæði Harðar hafa verið útbúnir hjá Mosfellsbæ.
Til að spara fólki sporin og auðvelda undirritun er hér með boðað til undirritunardaga í Harðarbóli, annars vegar miðvikudaginn 13.mars og hins vegar mánudaginn 18.mars, báða dagana klukkan 17-20.
Þeir samningar sem verða óundirritaðir eftir þennan tíma munu liggja frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins í Þverholti 2, 2. hæð, þar sem lóðarhafar geta sótt skjölin til undirritunar.
Athugið:
Allir eigendur eignarhluta í viðkomandi hesthúsi þurfa að skrifa undir. Þeir eru allir tilgreindir á fremstu síðu samningsins svo það á að vera ljóst hverjir það eru. Hesthús er hver lengja.
Séu hjón/sambýlisfólk skráð saman fyrir eignarhluta þurfa þau bæði að skrifa undir en eins og áður greinir koma nöfn þeirra beggja fram á fremstu síðu samningsins.
Eigendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma lóðarleigusamningi til þinglýsingar og greiða þinglýsingarkostnað sem er 2700 krónur. Mikilvægt er jafnframt að frumritinu verði skilað til bæjarins, þegar það kemur úr þinglýsingu.
Hver og einn eigandi á að fá eitt eintak af samningnum til varðveislu.
Lóðarleigusamningar
Það er sönn ánægja að upplýsa hesthúseigendur um að lóðarleigusamningar vegna allra hesthúsalóða á félagssvæði Harðar hafa verið útbúnir hjá Mosfellsbæ.
Til að spara fólki sporin og auðvelda undirritun er hér með boðað til undirritunardaga í Harðarbóli, annars vegar miðvikudaginn 13.mars og hins vegar mánudaginn 18.mars, báða dagana klukkan 17-20.
Þeir samningar sem verða óundirritaðir eftir þennan tíma munu liggja frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins í Þverholti 2, 2. hæð, þar sem lóðarhafar geta sótt skjölin til undirritunar.
Athugið:
Stjórnin
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn