Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Brokkkórinn

23. september 2005 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamenn á höfuðborgarsvæðinu, nú er lag!

Hestamannakór undir vinnuheitinu “Brokkkórinn” hefur nú sitt annað starfsár…

Allir söngglaðir hestamenn fá nú tækifæri til að þenja raddböndin í hverri viku með sálufélögum sínum í hestamennsku, (það er nóg að vera velviljaður hestamönnum). Kunnátta í nótnalestri eða reynsla af kórstarfi er ekki nauðsynleg en skilyrði fyrir þáttöku er að hafa gaman af því að syngja og halda lagi.
Stefnan hefur verið að syngja meðan farfuglarnir eru fjarverandi, þ.e. frá því eftir réttir og þangað til fyrstu farfuglarnir láta sjá sig í apríl.

Æfingar verða á miðvikudögum kl 20.00-22.00, í Hofstaðaskóla

Kórstjóri verður Gróa Hreinsdóttir

Skráning fer fram með því að mæta á æfingu eða senda upplýsingar um nafn á netföngin dagny@landslag.is, lovisa_28@hotmail.com

Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar og skrá sig í eftirfarandi símanúmerum: Dagný 8205305 eða Lovísa 6610674

Hér er krækja sem gefur gott tóndæmi um kórinn.

http://hestekor.tk/