Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Einkatímanámskeið fyrir fullorðna hjá Antoni Páli Níelssyni

30. október 2023 Hestamannafélagið Hörður Comments Off
Einkatímanámskeið fyrir fullorðna hjá Antoni Páli Níelssyni – keppnisknapar Harðar og Reiðkennarar í Herði eru með forgang á skráningu.
Hægt að skrá sig á biðlista.
Skráning opnar 30.10. kl 21.
 
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.
 
Einkatímar 2x45min
Nemendur sem bóka sig núna eiga forgang á framhald (framhald í boði fram í Maí – 1x á mánuði)
Dagsetningar:
Miðvikudagur, 29.november – 1. 45min
Þriðjudagur, 19. desember – 2. 45min
Tímar eru milli kl 09 – 17.
9 pláss
Skráðar nemendur geta skráð sig svo á framhald 24.janúar og 14. febrúar og hafa forgang þar.
Verð: 34500isk – hver nemandi fæ að skrá sig með ein hest – til að fleiri komast að enn ef einhver vill vera á biðlista með annan hest má senda email á hordur@hordur.is
Skráning opnar 30.10.2023 kl 21:00