Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Frumtamningarnámskeið með Róbert Petersen

5. september 2022 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarhelgarnámskeið sem verður helgar 23.-25.9. og 30.9.-02.10 – bóklegur tími verður á miðvikudagskvöldið 21.9. kl 18-1930.

Námskeið byrjar með bóklegum tíma á miðvikudagskvöldið 23.9. og verða svo verklegir tímar 1x á föstudaginn 23.9. kvöld og svo eftir það 2x á dag.

Hver þátttakandi kemur með sitt trippi.

Farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar,

s.s. Atferli hestsins

Leiðtogahlutverk

Fortamning á trippi

Undirbúningur fyrir frumtamningu

Frumtamning



Bóklegir tímar: 1

Verklegir tímar: 11

Verð: 51.000.-



Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur.

Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöll Harðar og í Blíðubakka 2, þar sem unnið verður með trippin.

Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Tímasetningar fara eftir stærð hópana, ef eitthvað ósk er um sérstaka tíma / hópa verður það koma fram við skráningu og reynum við eftir besta getu að fara eftir því.



Skráning:

https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

frumtamning.jpg