Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hreinsunardagur Harðar sumardaginn fyrsta, 21. apríl!

20. apríl 2022 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nú er komið að hinum árlega hreinsunardegi okkar, hittumst og fegrum í kringum okkur fyrir vorið, sem er nú að bresta á 🙂

 

Dagskráin er hefðbundin:

 

 – 09:30: Hittumst við reiðhöllina og Rúnar útdeilir svæðum og ruslapokum

 – 09:35-12:00 Plokkum eins og vindurinn

 – 12:00: Hamborgar og pylsur í anddyri reiðhallar.

 

Hvetjum alla til að koma og taka þátt. Þetta er skemmtileg samvera 😊

 

Hlökkum til að sjá ykkur.

 

Stjórnin.