Fullt nafn og kennitala – hvaða stig (1 eða 2) – ég svara svo hvernig greiðsln fer fram
Það er takmarkað pláss – fyrstur kemur fyrstur fær.
Knapamerki 3 og 4 verða auglýst síðar.
Knapamerki 1 – Námskeið – bóklegt og verklegt
Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:
– Að undirbúa hest rétt fyrir reið
– Geta teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
– Geta farið á og af baki beggja megin
– Kunna rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
– Geta setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
– Geta framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
– Geta skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi áseta)
– Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum
Kennt verður 2 bóklega (1,5h) og 10 verklegir tímar (plús verklega próf og bóklega próf),
Námskeið byrjar á bóklega tíma 10.janúar 2022 Kl 1700-1830, Aldurstakmark er 12 ára.
Dagsetningar:
Bóklegar tímar í Hardabol á mánudögum:
10.1. og 13.1. kl 1700-1830
Bóklegt próf mánudaginn 17. janúar 2022 – í Hardarboli Kl 1800-1900
Verklegar tímar á mánudögum kl 17-18
24. / 31. Janúar 2022
7. / 14. / 21. / 28. Febrúar 2022
07. / 14. / 21. / 28. Mars 2022
Verklegt Próf: 04april2022 Kl 17-18
Kröfur til hestsins: Hesturinn verður að vera spennulaus og rólegur. Hesturinn þarf að hringteymast og fara um á brokki án vandarmála.
Kennari : Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: Ungmenni 35.000 krónur með prófi og skírteini
Verð: Fullorðnir 45.000 krónur með prófi og skírteini
Knapamerki 2 – bóklegt og verklegt
Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:
– Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
– Riðið einfaldar gangskiptingar
– Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
– Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
– Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
– Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
– Geta riðið á slökum taum og léttri taumsambandi
– Grunnskilningur fyrir samspil ábendinga
-Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
-Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis
Kennt verður 2 bóklega (1,5h) og 13 verklegir tímar (plús verklega próf og bóklega próf).
Námskeið byrjar á bóklega tíma 10.janúar 2022 Kl 1830.
Dagsetningar:
Bóklegar tímar í Hardabol á mánudögum:
10.1. og 13.1. kl 1830-2000
Bóklegt próf mánudaginn 17. janúar 2022 – í Hardarboli Kl 1800-1900
Verklegar tímar á mánudögum kl 16-17
24. / 31. Janúar 2022
7. / 14. / 21. / 28. Febrúar 2022
07. / 14. / 21. / 28. Mars 2022
11. / 25. April
02. maí
Verklegt Próf: 09maí2022 Kl 16-17
Kröfur til knapans: Það þarf að vera búin með bóklega Knapamerki 1.
Kröfur til hestsins: Hesturinn verður að vera spennulaus og rólegur. Hesturinn þarf að fara um á brokki án vandarmála og einnig þarf að geta riðið tölt.
Kennari : Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: Ungmenni 42.000 krónur með prófi og skírteini
Verð: Fullorðnir 50.000 krónur með prófi og skírteini
Knapamerki 1 og 2 – bóklegt og verklegt
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn