Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Youth Camp á Íslandi 2005

14. apríl 2005 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Youth camp er fjölþjóðleg æskulýðshátið fyrir ungmenni á aldrinum 14-18 ára sem haldnar eru annað hvert ár. Þátttakendur koma frá öllum aðildarlöndum FEIF og geta þrír frá hverju landi tekið þátt, en sex frá Íslandi mega taka þátt í ár.

Hátíðin verður haldin á Íslandi að þessu sinni, að Ármóti í Rangárþingi ytra og stendur í rúma viku, eða frá 15.-22. júlí Gist verður að Heimalandi undir vestur Eyjafjöllum.

Kostnaður er 45.000.- krónur og innifalið í því er…

gisting, fæði og skoðunarferðir. Þáttakendur þurfa helst að koma með eigin hest/hesta og allt þeim tilheyrandi.

Umsóknarfrestur er til 25.apríl og þá verða 6 heppnir umsækjendur dregnir úr pottinum.

Umsóknir berist til:

Skrifstofu LH Íþróttamiðstöðinni Laugardal

104 Rvík

Eða á tölvupóstfangið:

lh@isisport.is

Nánari upplýsingar veita starfsmenn æskulýðsnefndar Lh : www.lhhestar.is/unglingastarf