Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Gæðingamót Harðar 2020

3. júní 2020 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Árlegt gæðingamót Harðar verður haldið helgina 13-14. Júní og verður það opið öllum! Skráning verður frá miðvikudeginum 3. júní til mánudagsins 8. júní. Ef óskað er eftir að skrá eftir þann tíma er skráningargjaldið tvöfalt. Skráning er í gegnum Sportfeng.



Eftirfarandi flokkar eru í boði en skráningargjaldið er 6000kr í fullorðins flokkana og 5000kr í yngri flokkana, skeiðgreinar og unghrossakeppnina. Hvetjum fólk til að skrá sig tímanlega;)



– A-flokkur (gæðingaflokkur 1)

– A-flokkur áhugamenn (gæðingaflokkur 2)



– B-flokkur (gæðingaflokkur 1)

– B-flokkur áhugamenn (gæðingaflokkur 2)



– Barnaflokkur

– Unglingaflokkur

– A-flokkur ungmenna

– B-flokkur ungmenna



– Pollar teymdir

– Pollar ríða sjálfir



– Tölt T3 2. Flokkur

– Tölt T3 1. Flokkur

– Tölt T1 meistaraflokkur



– 100 metra skeið

– 100 metra stökk



– Unghrossakeppni (aðeins fyrir félagsmenn)



Hlökkum til að sjá ykkur!



ATH mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður/sameina flokka ef ekki næg skráning næst.