Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Íþróttamót Hrímnis 23./24. maí

14. maí 2020 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Vegna margra fyrirspurna og mikils áhuga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda íþróttamót fyrir Harðarfélaga með stuðning frá Hrímni.

 

Það verður lokað íþróttamót helgina 23. – 24. maí. Mótið verður með hefðbundnu sniði, en við áskiljum okkur rétt til að fella niður eða sameina flokka ef skráning verður dræm. Þær greinar sem verða í boði eru:

 

Fjórgangur

V2 Barnaflokkur

V2 Unglingaflokkur

V2 Ungmennaflokkur

V2 2. flokkur

V2 1. flokkur

 

Fimmgangur

F2 Unglingaflokkur

F2 Ungmennaflokkur

F2 2. flokkur

F2 1. flokkur

 

Tölt

T3 Barnaflokkur

T3 Unglingaflokkur

T3 Ungmennaflokkur

T3 2. flokkur

T3 1. flokkur

 

T7 Barnaflokkur

T7 2. flokkur

 

Gæðingaskeið

100m skeið.

 

Skráning fer fram inn á Sportfeng. Skráningargjöld 4500 kr. á hringvallagreinar en 3000 kr. í skeiðgreinar. Skráning er hafin og lýkur mánudaginn 18. maí á miðnætti. Ef skráð er eftir að skráningarfresti lýkur tvöfaldast skráningargjöldin.

 

Covid-19: Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur jafnt sem áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum Almannavarna og passi uppá 2 metra regluna.