Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skemmtimót Harðar – Föstudagur 8.5.2020 Kl 18:00

6. maí 2020 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Kæru Harðarfélagar!

Nú hefur samkomubanninu verið aflétt og því ber að fagna því með einu laufléttu skemmtimóti!

Mótið verður með firma sniði á skeiðbrautinni, sem sagt fjórar umferðir á hest, hægt tölt að reiðhöllinni og yfirferðargangur (frjáls gangtegund) frá reiðhöllinni aftur.

Við pössum samt að gleyma okkur ekki og halda áfram að fara varlega, virðum 2 metrana og hvort annað. Til að virða þetta höfum við ákveðið að hafa rafræna skráningu. Við munum setja inn Google Sheets skjal á facebook þar sem þið munuð skrá ykkur sjálf. Við gerum okkur grein fyrir því að ekki allir eru á Facebook og biðjum við ykkur því einnig að láta orðið berast og hjálpast að við skráningar.

Flokkarnir sem verða í boði eru:



– Pollaflokkur (inni á hringvelli)

– Barnaflokkur (inni á hringvelli)

– Unglingaflokkur

– Ungmennaflokkur

– 3. flokkur

– 2. flokkur

– 1. flokkur

– Heldri menn og konur (60+)



Einnig langaði okkur að kanna áhuga fyrir kappreiðum!

Hugmyndin var sú að halda tölt, brokk, stökk og skeið úrsláttarkeppni og sjá hver er á mestu græjunni hér í Mosó!

Við látum vita þegar nær dregur hvort úr kappreiðunum verði, en það fer náttúrulega bara eftir skráningu😁



Skráningargjald er 1.500kr (frítt fyrir polla) og leggja þarf inn á eftirfarandi reikning og senda tilkynningu á motanefndhardar2020@gmail.com með nöfnum á þeim sem verið er að borga fyrir í skýringu.



Kt. 650169-4259

Rk.nr. 549-26-2320



Hlökkum til að sjá ykkur… úr 2m fjarlægð😁

 

Hér má finna skjalið til að skrá:

 

https://docs.google.com/spreadsheets/d/1guzWImnaOhe_t7nB2hxFvT16jjODEJ6tYL8z-o-2_U0/edit?fbclid=IwAR3UEExSnSZEC9Z4Oz9HXYC3lWNkUTpYDaeN8dKGSObb7SsQCRG6wMRYnjQ