Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Námskeið eða einkakennsla í reiðhöll

6. janúar 2020 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Námskeið eða einkakennsla í reiðhöll



Af gefnu tilefni eru kennarar og nemendur áminntir um að nemandinn þarf að panta og greiða fyrir leigu reiðhallarinnar, sbr reglur af heimasíðu félagsins.



Reglur við leigu á reiðhöll



Félagsmaður, eða sá sem vill leigja reiðhöllina undir kennslu, þarf að panta á hordur@hordur.is.  Kennari sem fagaðili, ber að ganga úr skugga um að nemandi sé búinn að panta reiðhöllina.  Kennara er ekki heimilt að kenna í höllinni nema að annaðhvort kennarinn eða nemandinn hafi pantað reiðhöllina og gengið frá greiðslu.



Ef félagsmaður eða reiðkennari eru uppvís að kennslu án þess að hafa gengið frá pöntun og/eða greitt fyrir leigu, áskilur félagið sér rétt til að loka reiðlyklum og senda inn greiðsluseðil með 50% sektarálagi.



Reiðhöllin er sameign okkar Harðarmanna og til þess að geta viðhaldið henni, þurfum við leigutekjur.  Að greidd sé sanngjörn leiga, er hagur okkar allra.



Stjórn