Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Reglur við leigu á reiðhöll

21. janúar 2019 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Félagsmaður sem vill leigja reiðhöllina undir kennslu, þarf að panta hjá Sonju á hordur@hordur.is.  Kennari sem fagaðili, ber að ganga úr skugga um að félagsmaður sé búinn að panta reiðhöllina.  Kennara er ekki heimilt að kenna í höllinni nema að annaðhvort kennarinn eða nemandinn hafi pantað reiðhöllina og gengið frá greiðslu.

Ef félagsmaður eða reiðkennari eru uppvís að kennslu án þess að hafa gengið frá pöntun og/eða greitt fyrir leigu, áskilur félagið sér rétt til að loka reiðlyklum og senda inn greiðsluseðil með 50% sektarálagi.

Reiðhöllin er sameign okkar Harðarmanna og til þess að geta viðhaldið henni, þurfum við leigutekjur.  Að greidd sé sanngjörn leiga, er hagur okkar allra.

Stjórnin