Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

LAUS PLÁSS Á KEPPNISNÁMSKEIÐ BARNA

30. desember 2018 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Keppnisnámskeið

1.Hluti

14 jan

21 jan

28 jan

3 feb bóklegt 

4 feb

11 feb

18 feb

25 feb

Í fyrsta hluta keppnisnámskeiðsins verður áhersla lögð á vel skipulagða þjálfun og uppbyggingu keppnishests og knapa. Kennslan verður einstaklingsmiðuð og hver knapi setur sér markmið í sinni þjálfun og unnið verður markvisst að þeim markmiðum. Kennslan fer fram í litlum hópum 2 knapar saman í 40 mín í senn. Bókleg kennsla verður í fyrirlestraformi, 03Feb Kl 1730-1900.

Markmið 1. Hluta námskeiðsins er að knaparnir setji sér persónuleg markmið og öðlist þekkingu á þjálfun og æfingum til þess að undirbúa keppnishest sinn og sjálfa sig eins vel og kostur er.

2. Hluti

18 mars

25 mars

01 april

08 apríl

15 apríl

29 apríl

06 maí

Í öðrum hluta námskeiðsins verður farið meira í undirbúning fyrir keppni, farið er að velja greinar sem henta hverju pari og hugað að verkefnum tengdu því. Þegar fer að vora og veður leyfir færist kennslan að hluta til út á keppnisvöllinn.  Bókleg kennsla verður í fyrirlestraformi, nánari dagsetningu auglýst síðar.

Markmið annars hluta námsskeiðsins er að knaparnir öðlist þekkingu á þeim aðstæðum sem keppni í hestaíþróttum býður upp á, geti sett upp upphitun sem hentar hverju pari fyrir sig, stjórn á hugarfari í keppni, og geti sett upp verkefnið sem riðið er í keppni.

Ef mikil skráningverður, áskilur æskulýðsnefnd sér rétt til breytinga á kennslufyrirkomulaginu

Kennari: Hinrik Sigurðsson reiðkennari Þjálfari stigs 2 hjá ÍSÍ.

Verkleg kennsla hefst mánudag 14. Janúar.

Verð

Fyrri hluti 14. janúar til 25. febrúar – verð 25.500 kr

Seinni hluti 18. mars – 06. maí – verð 25.500 kr

Ef bókað er allur pakkin, (fyrri og seinni hlutinn saman) er verð 49000 ISK.



Sendið skilaboð á hordur@hordur.is