Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Opnað fyrir skil á haustskýrslum

14. nóvember 2018 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Matvælastofnun vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningu haustskýrslna í Bústofni (www.bustofn.is). Í samræmi við reglur (lög um búfjárhald nr. 38/2013) skulu umráðamenn búfjár skila inn haustskýrslu fyrir 20. nóvember um búfjáreign, fóður og landstærðir.

Undanfarin ár hefur vantað upp á að umráðamenn hrossa hafi skilað haustskýrslu lögum samkvæmt. Til að auðvelda umráðamönnum hrossa að ganga frá haustskýrslu hefur Matvælastofnun ráðist í umtalsverðar umbætur á skráningarferlinu þar sem umráðamenn hrossa sem aðeins telja fram hross á haustskýrslu geta nú skilað haustskýrslu í heimarétt WorldFengs.

Þeir umráðamenn sem einnig telja annað búfé fram á haustskýrslu þurfa nú að sækja upplýsingar um hrossin sín úr WorldFeng þegar skýrsla er skráð í Bústofn. Upplýsingar um staðsetningu og umráðamann hrossa þurfa því að vera réttar í WorldFeng.

Allir félagar í hestamannafélögum Landssambands hestamannafélaga og félögum Félags hrossabænda um allt land eiga að hafa frían aðgang að WorldFeng. Þeir sem hafa ekki þann aðgang geta hins vegar skráð sig inn í WorldFeng með sérstökum hjarðbókaraðgangi, nánari upplýsingar um aðgang veitir tölvudeild Bændasamtaka Íslands. (tolvudeild@bondi.is)

Að auki stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins fyrir þá sem ekki geta skilað sjálfir.

Nánari upplýsingar veitir Matvælastofnun (dýraeftirlitsmenn og Búnaðarstofa).