Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

1. Maí – Dagur Íslenska Hestsins – Opið hús

23. apríl 2018 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

OPIÐ HÚS á degi íslenska hestsins – Hestamannafélagið Hörður býður bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum þriðjudaginn 1. maí kl. 15:00.

Boðið verður uppá stutta og fjöruga sýningu, en meðal atriða eru: 

– Atriði félagsins úr sýningunni Æskan og Hesturinn

– Súsanna Sand Ólafsdóttir reiðkennari sýnir ótrúlegt samspil við gæðing sinn

– Kátar konur

– Knapar sem eru að ljúka hæsta stigi Knapamerkja

Að sýningu lokinni gefst gestum kostur á að klappa hestunum og spjalla við knapana. 

Upplýsingabás um starfsemi félagsins verður á staðnum og vöfflusala. Þá verður hægt að kynna sér reiðnámskeið Hestamenntar í sumar. 

Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og sjá öflugt starf hestamanna í Mosfellsbæ.31164083_1982711681770030_1002658607717679104_n.jpg31131818_1982711615103370_2172724608157876224_n.jpg