Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Mótanefnd Harðar: DRÖG AÐ DAGSKRÁ NÆSTU VIKURNAR

23. apríl 2018 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

DRÖG AÐ DAGSKRÁ NÆSTU VIKURNAR



Mótanefnd kom saman nú á dögunum og töluðum um komandi mót og viðburði. Hérna fyrir neðan eru drög af dagskrá næstu vikurnar, til að halda ykkur keppendum og áhorfendum upplýstum um hvað koma skal:

1. Mai – Æfingamót, þetta er hugmynd af litlu móti þar sem boðið yrði upp á opin flokk í öllum greinum og að loknu móti fengju keppendur umsögn frá dómara um hvað fór vel og hvað mætti bæta. Þetta væri íþróttamót og væri gert til þess að undirbúa m.a. Íþróttamót Harðar, Reykjavíkurmeistaramótið og Íslandsmótið. Þetta gæfi okkur mótanefnd líka möguleika á að keyra nýja dómarakerfið Sportfeng svo að við yrðum undirbúin fyrir stærri mót vorsins.

4.-6. Maí – Íþróttamót Harðar

30. Maí – Fyrri úrtaka fyrir Landsmót

1.-3. Júní – Gæðingamót Harðar, seinni úrtaka fyrir Landsmót