Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Kótilettukvöld Harðar

3. maí 2017 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Senn líður að kótilettukvöldinu okkar hjá hestamannafélaginu Herði sem verður haldið 6.maí í Harðarbóli. Hvetjum Harðarfélaga til að taka með sér gesti. 

Miðar verða seldir í Harðarbóli miðvikudagskvöldið 3.maí milli klukkan 19-21 eða senda mail á ragga@forum.is og leggja inná reikning 549-26-4259 kt. 650169-4259 og senda staðfestingu á ragga@forum.is

Miðaverð er 3.500,-

Húsið opnar kl.19.00 og borðhald hefst kl.19.30.

Matur: Kótilettur “ala mamma”, rauðkál, grænar baunir og rabbabarasulta. Niðursoðnir ávextir og rjómi.

Veislustjórn, fjöldasöngur.

Þetta er hátíð sem enginn má missa af.

Kveðja stjórn Harðar