Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Nudd og teygjunámskeið

11. janúar 2017 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Ágætu félagsmenn

Okkur langar að athuga hvort að það sé áhugi fyrir að halda nudd og teygjunámskeið fyrir hesta.

Auður Sigurðardóttir er kennari á þessu námskeiði og hefur hún númið þessi fræði í Noregi.

Námskeiðið yrði helgarnámskeið og myndi kosta ca 25.000 miðað við 10 manns. Innifalið í því er bókleg og verkleg kennsla á laugardegi og sunnudegi sem og kaffi og léttur hádegisverður báða dagana. Kennt yrði frá 9-17

Kæru félagar, ef þetta er eitthvað sem þið hafið áhuga á endilega sendið mér póst á hordur@hordur.is eða í skilaboð á feisbook sem allra fyrst svo hún geti pantað far hingað heim 🙂

Kær kveðja

Oddrún