Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur Harðar, 13. október 2015

28. október 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 13. október 2015

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Oddrún Ýr Sigurðardóttir (OÝS), , Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ), Alexander Hrafnkelsson (AH), Ólafur Haraldsson (ÓH). Haukur Níelsson (HN) .

1. Fundargerðir síðasta stjórnarfundar samþykkt.

 

2. Aðalfundur

Skýrsla stjórnar nánast tilbúin og búið er að fá Martein Magnússon sem fundarstjóra. Beðið er eftir skýrslum nenfnda.

Auglýsa þarf aðalfundin 21.október á heimasíðunni og senda á email lista.

 

3. Jakki Harðarmanna

Umræða um lit á jakka félagsins, stendur hvergi í lögum Harðar er varðar útlit búnings. Ákveðið var að taka umræðu um þetta mál á aðalfundi félagsins undir önnur mál.

 

4. Jafnréttisstefna Harðar

Var send á stjórn fyrir fundinn. Engar athugasemdir komu um þetta plagg og var stefnan samþykkt.

 

5. Reiðhöll

Lítið í notkun núna.

Reiðnámskeið fatlaðra byrjuð.

HN ætlar að fara í traktorsmálin.

Þarf að hefla gólfið fyrir veturinn og 2svar til 3svar yfir veturinn, fer eftir notkun.

 

6. Önnur mál

– Æskulýðsuppskeruhátið var 1 október, allt gékk vel og börn og unglingar fengu viðurkenningar.

– Ráðstefna um Landsmót er næstkomandi laugardag, eigum 3 fulltrúa þar.

– Formannafundur 6 nóvember í LH , fara tveir úr stjórn Harðar.-



Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: OÝS