Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 22.sept 2015

28. október 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 22. september 2015

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Oddrún Ýr Sigurðardóttir (OÝS), , Gunnar Steingrímsson (GS), Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ), Alexander Hrafnkelsson (AH), Ragnhildur Traustadóttir (RT), Ólafur Haraldsson (ÓH)) .

1.Fundargerðir síðasta stjórnarfundar samþykkt.

 

2. Framkvæmdaráætlun Harðar

Ætlum að skoða varðandi námskeiðin gjald fyrir per tíma í reiðhöll uppá kostnað á námskeiðum.

Ræddum það sem er komið inn vegna lykla og félagsgjalda er svipað og í fyrra.

Ákveðið að bera uppá aðalfundi að hækka árgjöld uppí 8.500

Framkvæmdir í Harðarbóli ræddar og kostnaður vegna alls. (sjá framkvæmdaráætlun)

Ákveða þarf kostnað á sal fyrir næsta ár. Fríða og Ragnhildur ætla að skoða það mál.

Ákveðið var að dúkar yrðu ekki leigðir með salnum.

Framkvæmdir í reiðhöll ræddar, kostnaður ræddar.(Sjá í framkvæmdaráætlun)

Framkvæmdir á Harðarsvæðinu, rætt hvað þarf að gera. (sjá í framkvæmdaráætlun)

3. Hólmfríður frá fræðslunefnd fatlaðra kom.

Rætt var um komandi námskeið og orðið er fullt á öll námskeiðin.

Ákveðið að kaupa ofn í reiðtygjageymslu fatlaðara.

Ákveðið að skoða tryggingarmál er varða reiðnámskeið hjá fatlaðra.

Rætt var um sjálboðaliða, mikil þörf á þeim og búið er að ræða við skólana um að fá sjálfboðaliða.



4. Hákon Hákonarson kom og ræddi við stjórn

Rætt var um aðkomu Áttaviltra að fjármunum í framkvæmdir Harðarbóls haustið 2015. Rætt var hugmyndir af breytingar og hugmyndir.

Einnig voru ræddar hugmyndir um okkar nærumhverfi, hvað sé hægt að gera. JD ætlar að heyra í Sæmundi varðandi umhverfisnefndina.

5. Sonja Noack yfireiðkennari kom og ræddi við stjórn.

Meðal annars sem var rætt um var

Reiðkennarasamningar

Fjölbreytt námskeið sem verða í boði

Hestaíþróttaklúbburinn

Fatlaðir – búið að fylla á öll námskeiðin og kominn biðlisti.

6. Félagsstarfið, hér að neðan má sjá hvað var rætt um varðandi næsta tímabil

Aðalfundur – 4.nóv

Nefndarkvöld – uppskeruhátíð – des/jan

Félagsfundur – fá nýjar hugmyndir – des/jan

Nefndir – endurnýjun

Mótahald – nýjar hugmyndir

Sýningar – nýjar hugmyndir

Folaldasýning

Fyrirlestrar – hugmynd að fá Reynir Örn er til í að koma og segja frá þjálfun á Greifa

Skemmtanir – nýjar hugmyndir

Félagsjakkar – í vinnslu – tilboð komið – aðalfundur.

Siðareglur – aðalfundur

Siðanefnd – 2 úr stjórn, 1 æskulýðsnefnd, 1 fræðslunefnd, 1 Mosfellsbær (Edda Davíðs)

Undirbúningur fyrir landsmót – undirbúningshópur

Panta húsnæði

Panta beit

Grill

Fatnaður

Úrtaka

Æfingabúði

Fjáröflun

7. Starfsmenn

Umsjón reiðhallarinnar – 80 tímar á mánuði

Skrifstofa – 20 tímar á mánuði

Yfir reiðkennari – 20 tímar á mánuði

8. Önnur mál

–          GÖS ákveður daga sem á að vinna í Harðarbóli.

–          HH athugar með fund í BYKO

–          Vantar að skipa í árshátíðarnefnd.

–          Gylfi er til í að vera í árshátíðarnefndinni, spurning um að fá einhvern úr Mosfellsdal og/eða Kjósinni.

–          Stefnt að selja 130 miða á hrossakjötsveisluna.

–          Endurskoða þorrablótið,hvort eigi færa það þar til í febrúar eða sleppa því.

–          Búið að auglýsa eftir reiðkennurum.

–          Lítil skráning á reiðnámskeið í haust.

–          Rætt var um að senda meira á netfangalista Harðar

–          Námskeið, rætt var um aðútbúa póstlista, jafnvel sms lista – GÞÞ og Odda

–          Bóklega knapamerkið verður í haust, 3,4 og 5.



Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: OÝS