Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 8.sept. 2015

24. september 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 8. september 2015

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Oddrún Ýr Sigurðardóttir (OÝS), , Gunnar Steingrímsson (GS), Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ), Alexander Hrafnkelsson (AH), Ragnhildur Traustadóttir (RT), Ólafur Haraldsson (ÓH), Haukur Níelsson (HN) .

1.Fundargerðir síðasta stjórnarfundar samþykkt.

 

2. Sumarið i Herði



Starfsmaður reiðhallar hefur lítið verið við v/veikinda, Berglind í reiðskólanum hefur séð um þrif á meðan.Enduskoða þarf ýmsa hluti á beitartímabilinu 2016

3. Framkvæmdir í Harðarbóli haustið 2015



– Harðarból klætt að utan

– Endurbætur í eldhúsi, klósettum og klæða loft á tímabilinu 24 okt til desember, fer eftir mannskap og fjármagni hvað næst að gera á þessum tíma.

– GÖS fór yfir áætlaðan kostnað á tækjum í Harðarból/eldhús

– Miklar framkvæmdir hafa verið í sumar í kringum reiðhöll

– HN ætlar að ath með rennur á reiðhöll, einnig þarf að skoða snjógildrur

4. Önnur mál.



– Rætt var um að skoða nýtt hljóðkerfi í Harðarból

– Komin er hestur á hringtorg fyrir ofan hesthúsin, JD talaði einnig um að það væri verið að vinna að merkingum hjá bænum er varða hesthúsahverfið

– Mót sem haldið var nú í ágúst gékk vel, komum út í hagnaði.

Aðalfundur verður haldin 4 nóvember 2015.

 

Reiðhöll

Stefnt verður að því að setja upp sjoppu í andyri reiðhallar sem allra fyrst.

Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: OÝS