Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Gæðingamót, skráningu lýkur á þriðjudagskvöld kl 23:00

1. júní 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Gæðingamót Harðar fer fram dagana 5.júní – 7.júní 2015. 

Skráning fer fram á Sportfeng.

Skráning hefst miðvikudaginn 27.maí og lýkur þriðjudaginn 2.júní. á miðnætti (skráning framlengd)



Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 3500 en fyrir börn og unglinga kr 3000. 

Skráningargjald fyrir unghrossakeppnina, tölt og skeiðgreinar er kr 3.000.



Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk, C flokk og pollar verða að tilkynna það með því að senda póst á hordur@hordur.is



Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:



A-flokk gæðinga

A-flokk gæðinga áhugamenn

B-flokk gæðinga

B- flokk gæðinga áhugamenn

C- flokk gæðinga (ef næg þátttaka næst)

Ungmenni

Unglingar

Börn

Unghrossa keppni(merkt annað í sportfeng)

Tölt opin flokkur

Tölt áhugamenn

Tölt T7 börn og unglingar

Tölt 17 ára og yngri

Skeið 100m, 150m, 250m

Pollar teymdir og pollar ríða einir


Einnig hvetjum við fólk til að skrá sig í flokka miða við keppnisreynslu hvers og eins.

Mótanefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka.

Kveðja

Hestamannafélagið Hörður