Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

FUNDUR MEÐ ÖLLUM FORMÖNNUM NEFNDA Í HERÐI

12. nóvember 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Til formanna nefnda í Hestamannafélaginu Herði.

Þriðjudaginn 18.nóvember n.k. kl.18.45 boðar stjórn Hestamannafélagsins Harðar formenn nefnda á sameiginlegan fund í Harðarbóli. Boðið verður uppá pítsu. Æskilegt er að formenn og/eða staðgenglar formanna mæti á fundinn.

Dagskrá fundarins:

  1. Farið verður yfir sarfslýsingar fyrir nefndir félagsins.
  2. Formenn samræma dagsetningar á uppákomum vetrarins.
  3. Formenn nefnda kynna starfið á komandi vetri.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á hordur@hordur.is eða jonadisbraga@gmail.com.

Nefndarkvöld verður haldið 28.nóvember n.k. kl.19.00 í Harðarbóli. Þangað er öllum nefndum boðið sem hafa starfað fyrir félagið sl. ár og einnig þeim sem eiga eftir að starfa fyrir félagið næsta ár.

Maturinn er í boði Hestamannafélagsins Harðar. Hægt verður að kaupa veitingar á kostnaðarverði.

Við viljum biðja formenn um að tilkynna þátttöku nefndarmanna og annarra sjálfboðaliða sem starfað hafa fyrir nefndina ekki seinna en miðvikudaginn 26.nóvember n.k .á  hordur@hordur.is eða jonadisbraga@gmail.com

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar