Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hvaða reiðnámskeið langar þig á?

2. október 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Þessa dagana er fræðslunefnd Harðar að leggja drög að fræðsludagskrá vetrarins og okkur vantar þína hjálp. Við óskum eftir áhugasömu og hugmyndaríku fólki til að vinna með okkur í fræðslunefnd. Með öflugt félag á bakvið okkur og einhverja þá bestu aðstöðu sem finnst á landinu eru möguleikarnir nær óendanlegir. Ef við leggjumst öll á eitt ætti fræðsludagskráin að endurspegla vilja Harðarfólks sem best. 

Ef þið hafið áhuga á að taka þátt getið þið haft samband við Hans Orra (hansorri@jl.is) eða Öglu (aglahendriks@gmail.com).