Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Nú getum við alveg “sleppt okkur” um helgina!!!!!

6. júní 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off
Því nú hefur verið gefið grænt ljós á sleppingu hrossa á morgun laugardaginn 7. júní. 

Allir beitarleigjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur þær sem gilda um beitarhólfin og fylgja þeim í hvívetna. Eins og áður ber hverjum og einum að taka vakt einn sólarhring og verður gengið fljótlega frá vaktatöflunni og hún send til hlutaðeigandi aðila.

Þá minnum við á fréttatilkynningu á heimasíðu félagsins þar sem kynnt var átak í að fá góða úttekt á hólfin eftir 10. september í haust. 

Þar er slagorðið “Allir í einkunn 3”. Við stefnum að því að enginn fari neðar en 3 í einkunn og verða hólfin tekin út um miðjan ágúst og veittar ráðleggingar til að allir nái takmarkinu.

Beitarnefnd