Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 11.febrúar 2014

28. maí 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 11.febrúar 2014

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Ragnhildur Traustadóttir (RT), Alexander Hrafnkelsson (AH), Haukur Nílelsson (HN, Gunnar Steingrímsson (GÖS), Oddrún Ýr Sigurðardóttir ( OÝS), Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ)

1.         Fundargerð síðasta stjórnarfundar samþykkt.

2.         Framkvæmdir í og við Reiðhöll

– GÖS
ræddar hugmyndir hvernig á að fegra í kringum reiðhöllina og í átt að Harðarbóli.  Tyrfa og steypa plan við nýtt gerði.  Hugmynd að setja einhverskonar hindrun við bakka við reiðhöll og í átt að félagsheimili jafnvel langbönd.  Tröppur að reiðhöll, stíur inní reiðhöll og fleira.  Smá frestun á boxi í reiðhöll en kemur í næstu vikum.

Verður skoðar nánar þegar líður að framkvæmdum. 

4.         Ástand reiðvega

– Félagsmenn hafa mikið samband vegna reiðvega, mikil drulla hefur verið á veginum, sérstaklega vegna þess að tíðarfarið hefur ekki verið gott, þýða og frost á víxl.

Þegar líða fer á og veður fer að lagast munu endurbætur halda áfram við reiðveginn.  Stjórn gerir sér mjög vel grein fyrir því hvernig ástandið er núna og bíðum eftir frekari aðgerðum á veginum vegna þessa.

4.         Eldhús

Komið tilboð í elda og klakavél, ákveðið að taka því. 

5.         Önnur mál

– Sýnikennsla tókst vel með umferðareglum

– Grímutölt tókst mjög vel, mikil þátttaka var, sérstaklega í yngri flokkunum.



–   árshátið á næsta leyti, mikil eftirspurn  eftir miðum,  komin biðlisti.

– Búið að auglýsa traktorinn, fyrirspurnir byrjaðar.

– OÝS sagði frá fundi hjá FMOS, stefnt að hefja stúdentsbraut næsta haust og byrjað að vinna að áfangalýsingum sem þurfa að vera klárar fyrir maí mánuð 2014.

– Árskýsla Harðar send til UMSK fyrir ársþing og til Mosfellsbæjar frá æskulýðsnefnd.

– Ársþing UMSK er 27.febrúar næstkomandi, hluti stjórnar mun fara.  Viðurkenningar UMSK ræddar, Valdimar framkvæmdarstjóri ætlar að senda upplýsingar til JD.

– Rædd hugmynd af gullmerki að vegum félagsins.  Stjórn ákvað að skoða málið.

– JD sagði frá nokkrum fundum sem hún er búin að sækja á vegum félagsins.

– Búið að fá tilboð vegna spegla í reiðhöll, stjórn skoðar það.

– Rætt var um búnað í höllina, biðja treknefnd að taka saman hvaða búnað þarf.

– Ákveðið að kaupa kaffikönnur.

Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: Oddrún Ýr Sigurðardóttir