Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 21.janúar 2014

28. maí 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 21.janúar 2014

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Ragnhildur Traustadóttir (RT), Alexander Hrafnkelsson (AH), Haukur Nílelsson (HN, Gunnar Steingrímsson (GÖS), Oddrún Ýr Sigurðardóttir ( OÝS)

1.         Fundargerð síðasta stjórnarfundar samþykkt.

2.         Aðafundargerð

Aðalfundargerð ekki tilbúin.

3.         Framkvæmdir

– Má fara að byrja á framkvæmdum við reiðhöll (vegna 6.500.000 frá bænum)

– Verið er að bera efni í reiðvegi og er efnið staðsett við kerrustæði.

– JD ætlar að athuga með ástand reiðvega á svæðinu, þá sérstakleg flugvallarhring.  Eigum eftir að fá endanleg svör frá bænum varðandi framkvæmdir og annað í nálægð reiðvega.  JD fer í að óska eftir fundi með bæjarstjóra.

– Lýsing á flugvallarhring.  Búið er að ræða við bæinn um að laga þá staura sem fyrir eru.  GÖS hefur aðeins skoðað mögulegan kostnað á að lýsa allann hringinn upp.  Stjórn Harðar hefur bókað eftirfarandi:

„Stjórn Harðar mun skrifa bréf til Mosfellsbæjar varðandi lýsingu á reiðleið á flugvallarhring.“

Stúkumál.  Box við stúku mun væntanlega koma til uppsetningar í næstu viku og kofinn verður fjarlægður.

4.         Endurskoðun á nokkrum kostnaðarliðum félagsins

– Skoðaður var símakostnaður sem búin er að vera of hár, ákveðið var að skipta yfir í Hringdu með síma og nettenginu í Harðarbóli og reiðhöll.

             – Securitas.  Búið að ná niður mánaðargjaldi þar um tæplega helming, einnig hafa JD og RT átt í viðræðum við forsvarsmenn Securitas varðandi styrki til félagsins.

VÍS.  Viðræður hafa verið í gangi við Elías Þórhalsson hjá VÍS vegna mögulegs styrktarsamnings.

5.         Önnur mál

– Stjórn ræddi um að í vor ætti að koma á götugrilli hjá félaginu og tóku allir fundarmenn vel í þá hugmynd.

– Starfsmannamál voru rædd

– Þorrablót félagsins tókst með eindæmum vel og kom út í góðum hagnaði, þakka má formanni og gjaldkera félagsins fyrir vel þeirra framlag.

– Harðarból. Ákveðið hefur verið að endurnýja eldavél og fjárfesta í klakavél.  GÞÞ tengdi míkrafóne, snúru og fylgihluti í Harðarbóli, nauðsynlegt að merkja.

– Stjórn samþykkti að auglýsa traktor félagsins til sölu.

– JD fundaði með stóru mótanefndinni á dögunum, mikið og metnaðarfullt starf í gangi þar sem og hjá öðrum nefndum félagsins.

Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: Oddrún Ýr Sigurðardóttir