Hvetjum ALLA knapa í barna-, unglinga- og ungmennaflokki sem stefna að úrtöku fyrir Landsmót að skrá sig. Eingöngu riðin forkeppni og fá allir knapar einkunir og umsagnir frá dómurum (það verða 3 dómarar). Einn knapi inná í einu. Knapar verða kallaðir inn eftir skráningaröð og skulu vera mættir á upphitunarsvæði í reiðhöll tímanlega. Trausti Þór Guðmundsson reiðkennari og Rúna Einarsdóttir verða staðnum til að aðstoða knapa.
Barnaflokkur (10-13 á árinu): Riðnir skulu 2 hringir og sýnt fet, tölt og/eða brokk og stökk. Algengt að riðið sé hálfur hringur á feti, hálfur hringur á stökki og heill á tölti og/eða brokki (ef bæði sýnt, þá gildir betri einkunnin).
Unglingaflokkur (14-17 á árinu): Riðnir skulu þrír hringir og sýnt fet, hægt tölt, brokk, stökk og yfirferðargangur, þ.e. annað hvort tölt eða brokk á langhliðum.
Ungmennaflokkur (18 – 21 á árinu): Riðnir skulu þrír hringir og sýnt fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt á langhliðum.
Mjög gott er að kynna sér vel reglurnar á síðu LH
Ef þið hafið spurningar, setið þær hér inn og mun einhver dómari svara og geta þá allir nýtt sér upplýsingarnar (svo ekki þurfi að svara sömu spurningunum oft).
Ekkert skráningagjald Skráningu lýkur sunnudagskvöld 18.maí Skráning: Senda þarf upplýsingar um knapa (nafn, fæðingarár, flokkur, gsm, netfang) og hest (heiti og aldur) á heidi@reykjalundur.is
Æfingamót Æskulýðsnefndar Harðar
Hvetjum ALLA knapa í barna-, unglinga- og ungmennaflokki sem stefna að úrtöku fyrir Landsmót að skrá sig. Eingöngu riðin forkeppni og fá allir knapar einkunir og umsagnir frá dómurum (það verða 3 dómarar). Einn knapi inná í einu. Knapar verða kallaðir inn eftir skráningaröð og skulu vera mættir á upphitunarsvæði í reiðhöll tímanlega.
Trausti Þór Guðmundsson reiðkennari og Rúna Einarsdóttir verða staðnum til að aðstoða knapa.
Barnaflokkur (10-13 á árinu): Riðnir skulu 2 hringir og sýnt fet, tölt og/eða brokk og stökk. Algengt að riðið sé hálfur hringur á feti, hálfur hringur á stökki og heill á tölti og/eða brokki (ef bæði sýnt, þá gildir betri einkunnin).
Unglingaflokkur (14-17 á árinu): Riðnir skulu þrír hringir og sýnt fet, hægt tölt, brokk, stökk og yfirferðargangur, þ.e. annað hvort tölt eða brokk á langhliðum.
Ungmennaflokkur (18 – 21 á árinu): Riðnir skulu þrír hringir og sýnt fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt á langhliðum.
Mjög gott er að kynna sér vel reglurnar á síðu LH
Ef þið hafið spurningar, setið þær hér inn og mun einhver dómari svara og geta þá allir nýtt sér upplýsingarnar (svo ekki þurfi að svara sömu spurningunum oft).
Ekkert skráningagjald
Skráningu lýkur sunnudagskvöld 18.maí
Skráning: Senda þarf upplýsingar um knapa (nafn, fæðingarár, flokkur, gsm, netfang) og hest (heiti og aldur) á heidi@reykjalundur.is
Dagskrá (áætluð):
Kl. 17:00 Barnaflokkur
Kl. 18:30 Unglingaflokkur
Kl. 20:00 Ungmennaflokkur
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn