Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

“FORMANNSFRÚAR”-KARLAREIÐ HARÐAR 2014

9. maí 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Laugardaginn 17. maí verður farin hin vinsæla karlareið frá Þingvöllum í Mosfellsbæ. Áætlað er að leggja af stað frá Skógarhólum kl. 12.00 en flutningur frá hesthúsahverfinu kl. 10.00. Menn þurfa að koma sér saman um þennan flutning og að nýta hestakerrurnar sem best.

Byrjað verður á því að bjóða uppá morgunverð í Harðarbóli kl.8.30.

Veitingar verða framreiddar á leiðinni og að lokinni reið verður haldin grillveisla í félagsheimilinu.

Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 15. maí og greiða 7.500 kr. inn á eftirfarandi reikning sem jafnframt er staðfesting á þátttöku, munið að láta nafn og kennitölu fylgja greiðslunni:

549-26-4259 kt. 650169-4259 – Hestamannafélagið Hörður

Hægt er að senda fyrirspurnir á hordur@hordur.is eða hringja í síma:8616691

Þetta er eitthvað sem enginn karl má láta framhjá sér fara.