Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Þakkir til þeirra sem gerðu okkur kleift að taka þátt í Hestadögum 2014

7. apríl 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

æskan og hesturinn1Hestamannafélagið Hörður vill þakka öllum þeim Harðarfélögum sem gerðu félaginu kleift að taka þátt í Hestadögum á Höfuðborgarsvæðinu. Við áttum frábæra fulltrúa á öllum uppákomum sem haldnar voru s.s skrúðreið frá Sólfarinu að Hörpunni, opið hús þar sem við gáfum kjötsúpu og teymt var undir krökkum, skrúðreið um miðbæ RVK, Ístöltið og Hestadagarnir enduðu á Æskan og Hesturinn en þar áttum við knapa mörgum atriðum.  VIð erum ákaflega stolt af okkar fólki.