Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Vinna í hendi og töltfimi

28. mars 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Vegna mikillar eftirspurnar auglýsum við nú pláss á námskeiðunum Vinna í hendi og Töltfimi.



Vinna í hendi

Fjallað verður um mismunandi leiðir til að vinna í hendi. Lögð verður áhersla á andlegt og líkamlegt jafnvægi, líkamsbeitingu, sveigjanleika, jafnvægi til hliðanna og stjórn á yfirlínu á grunnþjálfunarstigi. Ætlunin er að nemendur öðlist meiri þekkingu á jafnvægi hestsins og geti notfært sér nýjar þjálfunaraðferðir til að stuðla að fjölbreytni í þjálfun. Kennslan mun byggja á áherslu á verklega kennslu en jafnframt bóklega samhliða sýnikennslu.

Kennt á sunnudögum kl. 10.30

Kennsla hefst sunnudaginn 28. mars nk. ef næst að fylla námskeiðið. Annars viku seinna.

Kennt í 5 skipti.

Kennari verður Malin Elisabeth Jansson.

Verð: 12.000 kr.


Töltfimi

Á þessu námskeiði verða kenndar liðkandi og safnandi æfingar sem hjálpa knapanum að undirbúa hestinn sinn betur fyrir tölt. Mikil áhersla verður lögð á að hesturinn beiti sér rétt á feti svo að töltið geti orðið sem best. Ítarlega verður farið í gangskiptinguna; fet-tölt-fet og hægt tölt. Æfingar sem kennarinn mun m.a styðja sig við eru: Sniðgangur, krossgangur, framfótasnúningur og afturfótasnúningur

Kennt verður í Hestasýn höllinni. Tveir í einu í tíma, hálftíma í senn.

Kennt verður á þriðjudögum kl. 17.

Kennsla hefst næstkomandi þriðjudag 1. apríl nk.

Kennt í 5 skipti

Kennari verður Line Nørgaard

Verð 12.500 kr.


Skráning í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi):

http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

1. Velja námskeið. 

2. Velja hestamannafélag (Hörður).

3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að fara inná www.hordur.is og sækja um aðild).

4. Velja atburð (og hóp ef fleiri en einn hópur).

5. Setja í körfu. 

6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.