Mættir: Jóna Dís, Ragnhildur, Gyða, Ólafur, Alli, Gylfi, Sigurður og Gunnar
Fundargerð síðasta fundar lesin upp og samþykkt.
Ragnhildur er að vinna við að gera ársreikning fyrri 2012 og 9 mánaða uppgjöri fyrir 2013 sem hún mun kynna á næsta stjórnarfundi sem verður 15. okt.
Ákveðið var að boða til almenns félagsfundar í Harðarbóli 10. okt. nk.
Reiðhöllin og umhverf
–Samþykkt var að auglýsa á vefnum eftir tillögum að nafni á reiðhöllinni.
–Farið verður í að loka þulastúku.
–Samþykkt var á fundinum að fara í nauðsynlegar framkvæmdir austan við reiðhöllina. Mosfellsbær hefur sett styrk til þessarar framkvæmdar á fjárhagsáætlun fyrir 2014. Reynt verður að ná samningum við verktaka um framkvæmdir í haust á þessum grunni. Áhersla verður á að setja niðurföll og betra yfirlag á svæðið framan við austurgaflin, framlengja regnvatnslögn norður úr og loka skurði, setja upp gestagerði og setja út undirlag kringum það.
–Ákveðið að stækka steyptu stéttina í reiðhöllinni út að enda á skábraut og framlengja þeim vegg til að loka á milli hesta- og áhorfendasvæðis.
Búið er að skrifa undir samstarfssamninginn milli Mosfellsbæjar og Harðar sem kynntur var á síðasta stjórnarfundi.
Stjórnarfundur 24.09. 2013
Stjórnarfundar í Herði 24. september 2013.
Mættir: Jóna Dís, Ragnhildur, Gyða, Ólafur, Alli, Gylfi, Sigurður og Gunnar
– Samþykkt var að auglýsa á vefnum eftir tillögum að nafni á reiðhöllinni.
– Farið verður í að loka þulastúku.
– Samþykkt var á fundinum að fara í nauðsynlegar framkvæmdir austan við reiðhöllina. Mosfellsbær hefur sett styrk til þessarar framkvæmdar á fjárhagsáætlun fyrir 2014. Reynt verður að ná samningum við verktaka um framkvæmdir í haust á þessum grunni. Áhersla verður á að setja niðurföll og betra yfirlag á svæðið framan við austurgaflin, framlengja regnvatnslögn norður úr og loka skurði, setja upp gestagerði og setja út undirlag kringum það.
– Ákveðið að stækka steyptu stéttina í reiðhöllinni út að enda á skábraut og framlengja þeim vegg til að loka á milli hesta- og áhorfendasvæðis.
Næsti stjórnarfundur verður 15. okt.
Fundaritari
Gunnar Örn
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn