Stjórnarfundur 29. janúar 2013 með reiðhallarnefnd
Mætt:
Jóna Dís, Ragnhildur, Alli, Siggi, Ólafur, Gunnar
Einnig Guðjón og Siggi Teits vegna reiðhallarmála.
Reiðhallarmál
Fram kom að JDB og GM fóru á fund Haraldar bæjarstjóra þar sem reiðhallrmál voru rædd. Frá og með 2013 mun Mosfellsbær greiða umsamið leiguverð sem er 6.000.000,- en það var lækkað í 3.000.000 árin eftir hrun. Haraldur benti á að borið hafi á óánægjuröddum varðandi lágt verð sem atvinnumenn í hestamennsku greiddu fyrir afnot af reiðhöllinni.
Fjárhagsstaða reiðhallarinnar lá ekki fyrir á fundinum. Á fundinum var gerð rekstraráætlun fyrir 2013 á grundvelli upplýsinga sem lágu fyrir úr bókhaldi og reynslu við reksturinn hingað til. Áætlaður rekstarkostnaður er 5.800.000,- sem skiptist þannig
Laun og launatengd gjöld 2.700.000
Rafmagn og hiti1.000.000
Rekstur kerfa1.000.000
Viðhald húss og áhalda 900.000
Tekjuáætlun
Leigutekju frá Mosfellsbæ6.000.000
Útleiga og lyklar1.200.000
Auglýsingar og uppákomur 500.000
Lögð var fram eftirfarandi tillaga að gjaldskrá fyrir notkun á reiðhöllinni og hún samþykkt samhljóða.
Ársgjald fyrir almennan félagsmann 6.000
Ársgjald fyrir félagsmenn sem nýta reiðhöllina í atvinuskini 25.000
Félagsmenn í barnaflokki hafa frían aðgang.
Afnot af ½ höllinni vegna reiðkennslu félagsmanna 2.500kr/klst
Útleiga: 8.000kr/klst
JDB ræðir við bæjartæknifræðing um nauðsynlegar framkvæmdir vegna vatnsaga sem er til vandræða sunnan og austan við höllina.
Umsókn um niðurfellingu á fasteignagjöldum Harðar
Ragnhildur sér um að leggja inn umsókn til bæjarins um niðurfellingu fasteignagjalda.
Starfsskýrsla Harðar
Tekið var fyrir bréf frá ÍSÍ frá 22. janúar 2013 vegna skila á starfsskýrslum. Sigurður G. og Ragnhildur taka saman gögn úr ársskýrslu.
Heimasíða Harðar
Kjartan Jónsson kom á fundinn og fór yfir helstu atriði og tímasetningar.
Fundargerð 29.janúar 2012
Stjórnarfundur 29. janúar 2013 með reiðhallarnefnd
Mætt:
Jóna Dís, Ragnhildur, Alli, Siggi, Ólafur, Gunnar
Einnig Guðjón og Siggi Teits vegna reiðhallarmála.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.18.45
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn