Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning á Æskuna og hestinn

25. janúar 2013 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin 7. apríl í Reiðhöllinni Víðidal.

Haldnar verða tvær sýningar, kl. 13.00 og kl. 16.00. Að sýningunni standa félögin Hörður, Fákur, Sörli og hestamannafélagið á Kjóavöllum.

Þau atriði sem óskað er eftir skráningu í eru:

  • Fánaatriði – Opnunaratriði  (2 frá hverju félagi)
  • Pollar teymdir – grímubúningar
  • Pollar ríðandi – grímubúningar
  • 9 – 11 ára sem ríða sjálf – litaflóra íslenska hestsins
  • 10 – 12 ára sameiginlegt atriði
  • 13 – 17 félagsatriði
  • Smalakeppni (2 frá hverju félagi)

Öllum áhugasömum pollum, börnum og unglingum í hestamannafélaginu Herði sem vilja taka þátt í sýningunni er bent á að hafa samband við Oddrúnu á maili oddasig@gmail.com eða í síma 849 8099 um nánari upplýsingar fyrir 1. febrúar.

Kveðja

Æskulýðsnefnd Harðar.